Lýsing
Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, [email protected] - 895-1098.
Komið er inn á hol með flísum á gólfi og fataskáp. Björt suðustofa með parketi, gengið út á stórar svalir í suður. Eldhús með parketi á gólfi, ágæt upprunaleg innrétting og nýjum tækjum að hluta, ísskápur og uppþvottavél fylgja. Innaf eldhúsi er rúmgott þvottahús/geymsla með hillum. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, ágæt innrétting, sturtuklefi og baðkar. Rúmgott hjónaherbergi með parketi og stórum skápum. Barnaherbergi með parketi og fataskáp. Úr svefnherbergjum er fallegt útsýni til norðurs að Esjunni. Í sameign er hjólageymsla. Eigninni fylgir merkt stæði í bílageymslu sem er til hliðar við húsið. Búið er að leggja fyrir rafhleðslu fyrir bíla. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Íbúðin er vel staðsett með fjölbreytta verslun í Kringlunni, skóla, þjónustu og menningu í göngufæri. Einnig er stutt að sækja sér hressingu í fallegar gönguleiðir í Fossvogi, Öskjuhlíð og við Nauthólsvík
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.