Lýsing
Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, [email protected]
Komið er inn í anddyri með parketi á gólfi. Mjög björt stofa/borðstofa sem er í suður, parket á gólfi, útgangur út á verönd í suður, fallegt útsýnir er úr stofunni og af veröndinni. Eldhúsið er opið við stofuna og er sama parket á gólfinu. Falleg nýleg hvít innrétting og ný tæki, tengi fyrir uppþvottavél. Innaf eldhúsinu er parketlögð geymsla með hillum sem fylgja. Parketlagt hjónaherbergi með nýjum fataskáp. Fallegt baðherbergi sem hefur allt verið endurgert, flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni og sturtuklefi. Í sameign á hæðinni er sameiginlegt þvottahús og sameiginleg hjóla/vagna geymsla.
Undanfarin ár hafa verið unnar tölverðar framkvæmdir á húsinu, má þar nefna:
Í kringum 2016 var skipt um glugga og gler ásamt nýrri svalahurð.
Árið 2017 var húsið múrviðgert að utna og það málað.
Árið 2024 var skipt um dren og sett nýtt frárennsli, inní húsi og út í brunna.
Árið 2024 var lóðin endurnýjuð og settar nýjar stéttar í kringum húsið.
Íbúðin sjálf hefur verið mikið endurnýjuð sl. ár.
Rafmagn er endurnýjað og skipt um rofa og tengla og rafkerfið jarðtengt.
Skipt um öll gólfefni.
Nýtt eldhús og tæki í eldhúsinu.
Endurnýjað baðherbergi frá a-ö.
Nýr fataskápur í herbergi.
Ný brunahurð út í sameignina.
Nýjar smart loftræstivitur á baði og í eldhúsi.
Fallegt útsýni til suðurs þrátt fyrri að íbúðin sé á jarðhæð. Þetta er björt og skemmtileg eign á þessum vinsæla stað í Fossvogsdalnum. Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leikskóla og grunnskóla, verslun ásamt íþróttasvæði Víkings ásamt fallegu útivistarsvæði í Fossvogsdal og Nauthólsvík.
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.