Opið hús: Hólmasund 16, 104 Reykjavík. Eignin verður sýnd mánudaginn 15. júní 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignin er skráð 118,6 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, 4ra herbergja íbúð með sérinngangi, þar eru 3 svefnherbergi, þvottahús og geymsla innan íbúðar. Húsið er byggt árið 2000 og hefur fengið gott viðhald.
Um er að ræða frábæra fjölskyldueign á eftirsóttum stað við Hólmasund í Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, hjónaherbergi, 2 barnaherbergi, geymslu, þvottaherbergi og baðherbergi.
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð, flísalögð með nýlegum skápum. Komið er inn í hol/alrými sem tengist stofu, borðstofu og í framhaldinu eldhúsi sem tengt hefur verið borðstofusvæðinu á haganlegan máta.
Eldhúsið er með nýlegri, sérsmíðaðari innréttingu frá Birninum, náttúrusteinn er á bekkjum. Hugsað var fyrir góðu vinnuplássi, hirslum með skúffum og veglegum tækjaskáp. Eldhústæki eru vönduð, frá AEG, tveir ofnar, Span helluborð og innbyggð uppþvottavél sem fylgir.
Stofan er rúmgóð og björt með stórum gluggum sem snúa í suður og suðvestur, þaðan er gengið út á s-vestur svalir. Loft er upptekið (ca 4 m. lofthæð) yfir stofunni og gluggar háir sem tryggir frábæra birtu. S-vestur svalir (8,8 fm) er rúma vel grillið og borð og stóla.
Herbergin eru aðeins afmörkuð á svefnherbergisgangi, þar eru 3 herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Hjónaherbergi með nýlegum skápum með miklu skúffuplássi, tvö barnaherbergi, annað er með nýjum skáp.
Baðherbergi er flísalagt, með góðum "walk-in" sturtuklefa, upphengdu salerni, handlaug/innréttingu og handklæðaofni.
Geymsla innan íbúðarinnar er rúmgóð (7,2 fm) með góðum skápaeiningum. Þvottaherbergi er flísalagt með innréttingu og tengi fyrir þvottavél/þurrkara. Aðstaða til þess að hengja upp þvott.
Nýlegt, vandað harðparket er á gólfum þar sem ekki eru flísar (bað, þvottahús og eldhús). Innihurður eru sömuleiðis nýlegar.
Sameiginleg geymsla fyrir vagna og hjól er í sameign, vel aðgengileg á jarðhæð. Húsið hefur fengið gott viðhald, búið er að endurnýja töluvert af gluggum og verður það verk klárað á næstu misserum. Gróin og falleg sameiginleg lóð fylgir þessum íbúðaklasa. Góð aðkoma er að húsinu, næg bílastæði og búið er að setja upp rafhleðslustöð við bílastæði. Þetta er einstaklega falleg eign á frábærum stað í grónu umhverfi í Vogahverfi í Reykjavík, stutt er í fallegar göngu- og hjólastíga um hverfið við Laugardalinn og alla verslun og þjónustu og samgönguleiðir.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða [email protected].
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.