Lýsing
Miklaborg Fasteignasala og Safír byggingar ehf. kynna: Ný leið á markaðinn með SAFÍR20 Orkureiturinn er nýtt og glæsilegt íbúðahverfi við Laugardalinn. Sannkallaður sælureitur. Sérstök áhersla lögð á endurnýtingu orku og dagsbirtuvottaðar íbúðir. Rut Kára stýrir innanhúshönnun íbúða og leggur línurnar fyrir sameigninleg rými. Inngarðar að evrópskri fyrirmynd og líkamsræktarsalur í sameiginlegu rými á jarðhæð D hlutans. Einnig verður fjölbreytt þjónusta á jarðhæð eins og kaffihús og önnur hentug nærþjónusta sem auka á lífsgæði íbúa. Kynntu þér Orkureitinn og bókaðu skoðun hjá sölumönnum !
Nánari lýsing
NÝ LEIÐ Á MARKAÐINN MEÐ SAFÍR20
Íbúð 311 er 108,4 fm þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð. Geymsla 9,8 fm og svalir sem snúa í átt að Grensás, Innrétting VAL. Eignin skiptist í forstofu með góðu skápaplássi. Hjónasvítu með sér baðherbergi, skrifstofu eða sjónvarpsherbergi, sér þvottahúsi og öðru baðherbergi. Eldhús í alrými. Stofu og borðstofu. Íbúðin er afhent með Siemens (iQ300), Elica og Bora raftækjum í eldhúsi og vönduðum innréttingum frá GKS með stein á borðum. Íbúðir eru afhentar án megin gólfefna. Baðherbergi eru flísalögð.
Nýjar lausnir - betri hljóðvist
Hver íbúð er útbúin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Allt loft sem fer í gegnum kerfið er síað og er því minna af svifryki og frjókornum í íbúðunum en ella.
Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM vistvottunarkerfinu og hefur það fengið einkunina Excellent.
Allar íbúðir við Orkureitinn eru hannaðar til að hámarka nýtingu dagsbirtu og þar með auka vellíðan og stuðla að lífsgæðum íbúa.
Nánari upplýsingar veita:
Kjartan ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663 4392 eða [email protected]
Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða [email protected]
Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða [email protected]
Íris Arna Geirsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 770 0500 eða [email protected]
Móeiður Svala Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899 8278 eða [email protected]
Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða [email protected]
Viðar Böðvarsson löggiltur fasteignasali í síma 694 1401 eða [email protected]
Þröstur þórhallsson löggiltur fasteignasali í síma 897 0634 eða [email protected]