Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1990
112,8 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Fasteignasala Sævars Þórs kynnir vandaða fjögurra herbergja 112,8 fm íbúð á 2. hæð við Veghús 13 í þriggja hæða fjölbýlishúsi í Grafarvogi í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, stofu, sjónvarpskrók eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, og geymslu.
Nánari lýsing
Komið er inn í íbúðina um parketlagða forstofu. Á gólfum alrýma íbúðarinnar er dökkt parket en ljóst parket inni í svefnherbergjunum. Frá forstofu er gengið inn í tvö svefnherbergi með rúmgóðum fataskápum. Þaðan er einnig gengið í alrými sem skiptist í sjónvarpskrók, stofu og borðstofu. Eldhúsið er gegnt alrými og er með svartri eldhúsinnréttingu. Innan úr alrýminu er hol þar sem gengið er inn í hjónaherbergi, baðherbergi og þvottahús. Rúmgóður fataskápur er í hjónaherbergi og ljóst parket. Baðherbergið er vandað með flísum og bæði baðkari og sér sturtu. Sér þvottahús er í íbúðinni. Út frá stofunni eru stórar svalir sem vísa í átt til sjávar. Íbúðin er öll mjög björt og fallega.
Í sameign er sérgeymsla sem fylgir íbúðinni og sameiginleg hjólageymsla. Sameign hefur verið mjög vel við haldið sem og stigagangi. Húsið er allt að utan í góðu ástandi og var mikið endurnýjað og yfirfarið á árunum 2018-2020. Þá var ráðist í múrviðgerðir og húsið málað að utan. Þak var yfirfarið og málað og þakrennur voru endurnýjaðar. Tréverk var yfirfarið og því skipt út sem þurfti. Gluggar endurnýjaðir þar sem þörf var á og gluggalistum skipt út þar sem þurfti. Stigagangur var málaður og skipt um teppi og ofna að hluta auk þess sem dyrasímakerfið var endurnýjað.
Íbúðin er mjög nálægt allri þjónustu og bæði grunnskóli og leikskóli í göngufæri og stutt í Sundlaug Grafarvogs.
Um er að ræða bjarta og fallega íbúð á annarri hæð á þessum fjölskylduvæna stað með sjávarútsýni í mjög friðsælu hverfi.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. okt. 2020
42.250.000 kr.
46.900.000 kr.
112.8 m²
415.780 kr.
31. okt. 2013
24.300.000 kr.
24.200.000 kr.
112.8 m²
214.539 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026