Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Lilja Guðmundsdóttir
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Kári Sighvatsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1955
svg
270,3 m²
svg
8 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Virkilega notalegt 270,3m² einbýli á þremur hæðum. Fimm svefnherbergi og rúmgóðar stofur. Mögulegt að hafa aukaíbúð með sérinngang í kjallara. Gott hús á vinsælum stað í Smáíbúðahverfinu. Sólríkur garður til suðurs með sólpalli í hluta garðs. 

Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 270,3m², flatarmál íbúðarrýmis er 230,4m² og flatarmál bílskúrs er 39,9m². Fyrirhugað fasteignamat 2026 kr. 167.250.000.
Húsið skiptist í þrjár stofur, eldhús, snyrtingu, fimm herbergi, baðherbergi, þvottahús og sérstæðan bílakúr.

Nánari lýsing:
Miðhæð
Forstofa
með flísum á gólfi.
Stofa 1 er rúmgóð með fallegu parketi lagt í síldarbeinsmunstur.
Stofa 2 er einnig rúmgóð og björt með stórum gluggum til suðurs, fallegt parket lagt í síldarbeinsmunstur. 
Eldhús er rúmgott, hvít innrétting, flísar á milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppþvottavél, gluggar á tvo vegu. Flísar á gólfi.
Snyrting innaf forstofugangi, flísar á gólfi og gluggi.
Efri hæð. Gengið upp teppalagðan stiga.
Hjónaherbergi er rúmgott og með innbyggðum fataskápum, dúkur á gólfi. Svalir til austurs út frá herbergi.
Tvö minni herbergi með parketi á gólfum.
Baðherbergi með baðkari, flísar á gólfi og upp á veggi. Gluggi er á baðherberginu. 
Kjallari. Gengið niður teppalagaðan stiga. Sér inngangur er einnig í kjallarann.
Tvö svefnherbergi með innbyggðum fataskápum, dúkur á gólfi.
Stofurými með dúk á gólfi.
Eldhús lítill eldhúskrókur með efri og neðri skápum, helluborði og vask.
Snyrting undir stiga.
Þvottahús með flísum á gólfi og sturtuklefa. Innaf þvottahúsi er geymsa og inntaksrými.
Bílskúr er skráður 39,9m² og er hann við hliðina á húsinu. Hiti er í innkeyrslu og framan við húsið.

Húsinu hefur verið haldið við í gegnum tíðina og má þar nefna td nýja rafmagnstöflu og raflagnir, hluta af gleri og gluggum hefur verið endurnýjað, nýtt þakjárn á viðbygginguna og árið 2017 var húsið múrviðgert og málað.

Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík