Lýsing
Eignin bíður upp á marga möguleika svo sem til útleigu og einnig ef vantar gott skrifstofurými sem fylgir iðnaði.
Nánari lýsingu má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - [email protected]
Skipting eignar: Neðri hæð: Stór salur með þremur innkeyrsluhurðum. Snyrting og stigagangur.
Efri hæð: Stigagangur, stofa, eldhús, þrjú stór svefnherbergi, hol, þvottahús og baðherbergi.
Neðri hæð samanstendur af 201.5 fm. Þrjár innkeyrsluhurðar, opið rými og búið að stúka af sprautuklefa ásamt geyslulofti. Afstúkað rými sem er skráð verkstjórarými sem í dag er notað til að blanda lakk. Gott bílastæði er við tvær hliðar eignarinnar.
Efrihæð er innangeng frá stigagangi sem getur líka verið sérinngangur frá verkstæði. Gengið upp stiga, komið á stigapall og inn í fullinnréttaða íbúð. Íbúðin er öll parketlögð.
Komið er inn í bjarta stofu og borðstofu með fallegu sjávarútsýni.
Eldhúsið er opið inn að stofu með tengi fyrir uppþvottavél og háf. I
nn af borðstofu er stórt hjónaherbergi.
Gangur, parketlagður
Baðherbergi með góðum sturtuklefa og handklæðaofni.
Hol: Fyrir framan svefnherbergin er rúmgott hol sem nýtist sem skrifstofuaðstað og einnig eru góðir fataskápar þar,
Tvö barnaherbergi með góðum gluggum.
Þvottahús inn af holi með góðri innréttingu.
Skiptist í eldhús, stofu, borðstofu, flott útsýni er frá stofu yfir á Faxaflóa. Þvottahús, þrjú svefnherbergi ásamt baðherbergi.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður