Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Snægil 6 íbúð 201

603 Akureyri

66.900.000 kr.

743.333 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2226425

Fasteignamat

55.300.000 kr.

Brunabótamat

48.309.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1998
svg
90 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Snægil 6 íbúð 201 - Falleg og skemmtilega endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli í Giljahverfi - stærð 90,0 m²

Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, geymslu, gang, baðherbergi, tvö svefnherbergi, eldhús og stofu.
Sameiginlegt geymsluloft er yfir íbúðum efri hæðar.  

Forstofa er með lökkuðum flísum á gólfi og sprautulökkuðum skáp.  
Eldhús var endurnýjað árið 2024 og þá var veggur milli eldhúss og stofu tekinn niður. Falleg hvít innrétting með marmaralitaðri borðplötu. Mjög gott skápa- og bekkjarpláss. Ísskápur með frysti og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. Hurð er út úr eldhúsi á steyptar suður svalir. 
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem gluggar eru til þriggja átta og harðparket er á gólfum, lagt í desember 2024. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi og sprautulökkuðum fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 7,1 og 13 m². 
Baðherbergi er með lökkuðum flísum á gólfi, hvítri innréttingu og speglaskáp, wc, sturtuklefa og opnanlegum glugga.  
Þvottahús er inn af forstofunni, þar er dúkur á gólfi og bekkur með vaski. Tengi eru fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er inn af þvottahúsinu með harðparketi á gólfi og opnanlegum glugga. Geymslan getur nýst sem þriðja svefnherbergið. 

Annað
- Vinsæl staðsetning - gott útsýni.
- Sameignlegt geymsluloft er yfir íbúðum efri hæðar.
- Árið 2024 í desember var eldhús endurnýjað, lagt nýtt harðparket á helstu rými, innihurðar lakkaðar hvítar, fataskápar sprautulakkaðir og rafmagnstenglar endurnýjaðir.
- Íbúðin var öll máluð að innan í desember 2024, bæði veggir og loft.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. nóv. 2024
47.000.000 kr.
53.000.000 kr.
50201 m²
1.056 kr.
28. ágú. 2020
31.650.000 kr.
34.000.000 kr.
115 m²
295.652 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone