Opið hús: ÁRTRÖÐ 8 , 700 Egilsstaðir. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. febrúar 2026 milli kl. 12:30 og kl. 13:00.
Lýsing
Staðsett í grónu hverfi á Egilsstöðum, leikskóli, grunnskóli og sundlaug í göngufæri, stutt í óspillta náttúru og gönguleiðir.
Stærstur hluti lóðar snýr til suðurs. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Húsið er timburhús, byggt árið 1978, 93.6 m² að stærð, ásamt steyptum bílskúr, byggður árið 1979, 44.9 m² að stærð, samtals 138.5 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, skáli/gangur, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú herbergi, baðherbergi og þvottur/geymsla. Bílskúr.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | [email protected] | 471 2858 |
Nánari lýsing:
Anddyri, flísar á gólfi, fatahengi, rafmagnstafla.
Skáli/gangur er innan við anddyri, þaðan er opið inn í alrými, vinylparket á gólfi, fataskápur.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, vinylparket á gólfi. (Veggur hefur verið tekinn niður á milli eldhúss og stofu).
Eldhús, Brúnásinnrétting (2021), spanhelluborð, ofn og vifta, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél í vinnuhæð.
Herbergi I, hjónaherbergi, parket á gólfi.
Herbergi II, parket á gólfi, fataskápur.
Herbergi III, parket á gólfi.
Baðherbergi, vinylparket á gólfi, vaskinnrétting, speglaskápur, upphengt salerni og baðkar, gluggi,
Fiboplötur eru á vegg við og á baðkari (2017), upprunaleg innrétting.
Þvottahús/geymsla, flísar á gólfi, inntak vatns og hitaveitu.
Nýlegir rofar og tenglar í húsi, skipt var um innihurðir 2021.
Bilskúr er stakstæður, lagnir eru til staðar til að innrétta sem íbúð.
Gönguhurð er á hlið bílskúrs við inngang að íbúðarhúsi.
Skipulag bílskúrs, alrými/opið rými og tvö afstúkuð rými (herbergi). Dúkur á hluta gólfa, steypt gólf að hluta. Bílskúrshurð er flekahurð (án rafrænnar opnunar).
ÁRTRÖÐ 8 er timburhús á einni hæð klætt að utan með standandi bárujárnsklæðningu, timburgluggar og hurðar.
Bílskúr er steyptur, flatt þak (upprunalegt), timburgluggar og hurðar. Hellulögð stétt að inngangi hússins. Hiti er í stétt að hluta að inngangi hússins og í stétt á milli húss og bílskúrs.
Möl er í bílaplani framan við bílskúr. Lóð er gróin, þvottasnúra í garði.
Lóð er 750.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings, lóðarleigusamningur er til 50 ára frá 11. október 1976, skjal nr. 426-F-00000192/UU.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 217-5474. Ártröð 8.
Stærð: Íbúð 93.6 m². Bílskúr 44.9 m². Samtals 138.5 m².
Brunabótamat: 65.300.000 kr.
Fasteignamat: 60.150.000 kr.
Byggingarár: Íbúð 1978. Bílskúr 1979.
Eignarhald: 01.2 Séreign. 01.0101 Íbúð 93.6 Brúttó m².
Eignarhald: 02.2 Séreign. 02.0101 Bílskúr 44.9 Brúttó m².
Landeignanúmer: 157632. Íbúðarhúsalóð 750,0 m².
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | [email protected]
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – [email protected]
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - [email protected]
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala