Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1996
111,8 m²
5 herb.
1 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Opið hús: 8. febrúar 2026
kl. 15:00
til 15:30
Opið hús: Vesturtún 5, 225 Garðabær. Eignin verður sýnd sunnudaginn 8. febrúar 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Glæsilegt og mikið endurnýjað 111,8 fm fimm herbergja endaraðhús á einni hæð. Falleg eignarlóð með stórum veröndum bæði fyrir framan og aftan húsið og heitum potti. Sér bílastæði og geymsluskúr fyrir framan. Fjölskylduvæn staðsetning, örstutt frá Álftanesskóla, íþróttasvæðinu og sundlauginni.Nánari lýsing á því sem gert hefur verið síðustu ár er neðar í lýsingu.
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu og borðstofu, fjögur rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Geymsluskúr er fyrir utan hús. Eignin er skráð alls 111,8 fm og þar af er geymsluskúr 5 fm. Lóðin er 349 fm eignarlóð.
Lýsing:
Komið er inn á flísalagða forstofu og þaðan inn á parketlagðan gang. Svefnherbergin eru öll parketlögð og eru þrjú þeirra með fataskápum. Eldhúsið er opið yfir í stofu að hluta. Fallegar innréttingar sem ná upp í loft, steinn á borði og vönduð tæki. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Góð sturta með glervegg og innrétting undir heilum vask yfir. Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfi. Frá stofu er gengið út á stóra timburverönd með heitum potti. Þvottaherbergi er innan íbúðar með flísum á gólfi og innréttingum. Geymsluloft er er yfir öllu húsinu sem farið er í frá þvottaherbergi. Útigeymsla með lagnagrind er skráð 5 fm. Tengi fyrir rafmagnsbíl er á geymslunni við bílastæði.
Lóðin er mjög snyrtileg og með skjólveggjum
Nánari lýsing á því sem gert hefur verið síðastliðin ár að sögn eigenda:
Að framan – 2025:
- Hægri sólpallur og skjólveggur endurnýjaður - ca 18 fm gólfflötur
- Vinstri sólpallur og skjólveggur byggður – ca 8 fm gólfflötur.
Að aftan - 2024:
- Sólpallur og skjólveggur byggður frá grunni – ca 65 fm gólfflötur.
- Heitur pottur tengdur og innbyggður í sólpall ásamt útieldunaraðstöðu.
- Efni: Blómaskel með sjálfvirkri hitastillingu tengd með Wifi frá Trefjum.
Forstofa – Endurnýjað 2023:
- Skipt var um gólfefni.
Svefnherbergin og stofan:
- Skipt var um gólfefni árið 2022. Eikar parket – Herringbone boden.
- Veggur klæddur með viðarrimlum árið 2023.
- Öllum hurðum skipt út árið 2023.
- Þvottahús – endurnýjað 2023:
- Skipt um gólfefni og innrétting sett upp.
Baðherbergi – endurnýjað 2024:
- Nýtt salerni, ný blöndunartæki, sérpantað sturtugler, ný gólfefni og veggflísar og ný innrétting, (Haf studio framhliðar).
Eldhús – Endurnýjað 2023:
- Ný eldhúsinnrétting, (Haf studio framhliðar), ný gólfefni, ný borðplata, (Quarts Carrera White marble frá Steinprýði).
Þá voru allir ofnar í húsinu endurnýjaðir árið 2023.
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. júl. 2022
58.850.000 kr.
95.000.000 kr.
111.8 m²
849.732 kr.
21. jún. 2013
25.200.000 kr.
30.022.000 kr.
111.8 m²
268.533 kr.
9. júl. 2007
26.290.000 kr.
31.000.000 kr.
111.8 m²
277.281 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026