Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1966
svg
178,5 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected] og Betri Stofan fasteignasala kynna: Rúmgóða efri hæð með útsýni, alls 178,5 fermetra við Sogaveg 101 ásamt bílskúr. Eldhús hefur verið fært í stofu og í dag er svefnherbergi þar sem eldhúsið var. Inn á svefnherbergisgangi er búið að stækka baðherbergið. Eignin er laus við kaupsamning

Stutt er í alla þjónustu, skóla, samgöngur, verslun og íþróttir. 

Nánari lýsing:
Neðri forstofa: Með flísum á gólfi. Þaðan er gengið upp bjartan og rúmgóðan stiga með parketi. Gengið er niður í sameign frá neðri forstofu.
Efri forstofa/hol: Með sprautulökkuðum klæðaskápum og gólfhita.
Gestasnyrting: Hefur verið endurnýjuð. Flísalagt í gólf og veggi, hvítur sprautulakkaður skápur við vask og upphengt salerni.
Svefnherbergu I Rúmgott, bjart með gólfhita. Gluggar til suðausturs.
Svefnherbergi II Er rúmgott og bjart. Gluggar til norðvesturs. Herbergið var áður tvö svefnherbergi, auðvelt að breyta því aftur.
Hjónaherbergi III er rúmgott með skápum og glæsilegu útsýni til norðurs að Esjunni, Úlfarsfelli og víðar.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, góð innrétting með skápum, vinnuborð með vask, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og gluggi til norðausturs.
Geymsla/búr: Er staðsett fyrir innan þvottahús. Flísar á gólfi, hillur og gluggi til norðausturs.
Stofa: Er rúmgóð og björt og stórum gluggum. 
Borðstofa: Er rúmgóð og björt. Borðstofa er opin inní eldhús og stofu með stóra glugga til suðurs.
Eldhús: með sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu. De Dietrich eldhústæki eru í eldhúsi, s.s. stál bakaraofn, innbyggð uppþvottavél og spansuðuhelluborð. Auk þess er stál háfur, fallegar flísar á vegg og stór gluggi til suðurs. Eldhús er opið við borðstofu og er með gólfhita.
Svalir: Eru rúmgóðar og snúa til suðvesturs.
Baðherbergi: Er flísalagt með tvöfaldri sturtu, gólfhita og glugga til norðausturs. Endurnýjað 2022-2023
Bílskúr: Er rúmgóður eða 28,8 fermetrar með steyptu gólfi. Heitt og kalt vatn, rafmagn og upphitaður. Hægt að leggja tveimur bílum fyrir framan skúr. Góð aðkoma að bílskúr frá Rauðagerði. 

Um er að ræða fjölskylduvæna hæð á góðum stað í Reykjavík - Stutt í alla þjónustu 

Allar nánari upplýsingar gefa: Jason Kristinn Ólafsson, [email protected] í síma 7751515 - löggiltur fasteignasali
 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. apr. 2025
101.600.000 kr.
101.600.000 kr.
10301 m²
9.863 kr.
2. feb. 2022
72.900.000 kr.
80.000.000 kr.
178.5 m²
448.179 kr.
30. apr. 2018
60.850.000 kr.
61.000.000 kr.
178.5 m²
341.737 kr.
30. mar. 2017
53.450.000 kr.
53.500.000 kr.
178.5 m²
299.720 kr.
18. apr. 2012
32.650.000 kr.
36.100.000 kr.
178.5 m²
202.241 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík