Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Samúelsson
Andri Sigurðsson
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Monika Hjálmtýsdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Davíð Matthíasson
Vista
fjölbýlishús

Grettisgata 49

101 Reykjavík

Tilboð

Fasteignanúmer

F2005471

Fasteignamat

109.300.000 kr.

Brunabótamat

61.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1920
svg
129,3 m²
svg
8 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 17. febrúar 2026 kl. 13:00 til 13:30

Opið hús: Grettisgata 49, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. febrúar 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

Lýsing

LANDMARK fasteignamiðlun, Erla Friðriksdóttir löggiltur fasteignaslai s: 896-6160 / [email protected] kynna:
4 herbergja 129.3 m2 einbýlishús við í Grettisgötu 49.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 129,3 m2 merkt 01-01, samtals 129.3 m2 að stærð.

Nánari upplýsingar um eign:
Fallegt og sjarmerandi einbýlishús á eignarlóð við Grettisgötu í hjarta miðborgar Reykjavíkur, byggt árið 1920. Húsið ber með sér klassískan karakter og sögu sem einkennir eldri byggð miðborgarinnar. Samkvæmt fasteignaskrá er húsið skráð 129,3 m² að stærð, en raunverulegt gólfpláss er líklega meira þar sem rými undir súð nýtast vel. Skipulag hússins býður upp á notaleg og björt rými með miklum möguleikum. Húsinu hefur verið vel viðhaldið og nýlega endurnýjað með áherslu á einangrun, lagnir og nútímalegt baðherbergi, sem sameinar sjarma eldri byggingar við þægindi nútímans. Staðsetning eignarinnar er einstaklega eftirsóknarverð, í göngufæri við helstu þjónustu, verslanir, veitingastaði og menningarlíf miðborgarinnar.

Miðhæð:
Forstofa flísalögð (málaðar flísar)
Stofa/borðstofa í opnu rými með krossviði á gólfum tilbúið fyrir parketlögn
Eldhús parketlagt með borðkrók og snyrtilegri hvítri innréttingu
Baðherbergi flísalagt baðherbergi með sturtu

Ris:
Svefnherbergi stórt parketlagt herbergi (upphaflega tvö rými sameinuð), útgengt á rúmgóðar svalir og lítið salerni með flísum á gólfi

Kjallari:
Herbergi tvö rúmgóð herbergi skv. eigendum er búið að einangra gólf í öðru herberginu
þvottahús með steingólfi og innréttingu, útgengi í garð
Geymsla góð geymsla er í kjallara þar eru inntök fyrir húsið

Lóðin garðurinn er afgirtur - tvö bílastæði eru við húsið þar af eitt sem rúmar mögulega tvo bíla

Eftirfarandi endurbætur hafa verið gerðar á húsinu skv. upplýsingum frá eigendum: 
Rafmagn: Rafmagn í húsinu endurnýjað að miklu leyti. Skv. upplýsingum frá fyrri eiganda voru raflagnir í eldhúsi endurnýjaðar sem núverandi eigendur geta ekki staðfest.
Lagnir: Skipt um klóak lögn í kjallara og í garði. Nýjar vatnslagnir og frárennslislagnir á nokkrum stöðum. 
Einangrun: Loftaklæðning endurnýjuð og loft einangruð í flestum rýmum, einangraðir veggir og gólf að hluta í kjallara. 
Upphitun: Ofnalagnir endurnýjaðar og nýir ofnar að hluta. 
Gluggar: Gluggar í kjallara hafa verið endurnýjaðir með tilliti til flóttaleiða. 
Baðherbergi: Nýlega flísalagt baðherbergi og nýtt salerni (ca. 3 ára). 
Útihús: Skúr byggður að hámarksstærð sem heimilt er án byggingarleyfis, einangraður, með rafmagni, reistur í sama stíl og húsið. 
Borðstofa: Lagnir hafa verið lagðar í borðstofu þ.a. mögulegt er að flytja eldhúsið þangað og breyta núverandi eldhúsi í herbergi.
Garður: Gert hefur verið ráð fyrir vatnslögn fyrir útieldhús.

Þar sem um er að ræða hús sem er yfir 100 ára gamalt er kaupendum ráðlagt að láta ástandsskoða eignina af viðurkenndum fagaðila.

Nánari upplýsingar um eign veitir:
Erla Friðriksdóttir löggiltur fasteignasali s. 896-6160 eða [email protected]

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. mar. 2018
58.750.000 kr.
74.900.000 kr.
129.3 m²
579.273 kr.
17. des. 2012
37.150.000 kr.
45.800.000 kr.
129.3 m²
354.215 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone