Opið hús: Brákarsund 3A, 310 Borgarnes, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 16. febrúar 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Björt og skemmtileg þriggja herbergja efri hæð við Brákarsund í Borgarnesi. Vel skipulögð eign í timbureininga húsi. Eignin er að hluta til undir súð og mælist því gólfflötur 80 fm að viðbættum 10 fm svölum. Eignin skilast fullfrágengin með gólfefnum.
Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 67,7 fm
Nánar um eignina:
Rúmgott anddyri með flísum á gólfi.
Eldhús og stofa mynda eitt alrými.
Eldhús með dökkri innréttingu frá HTH. Helluborð og bakaraofn.Tengi fyrir uppþvottavél. Öll tæki frá AEG. Parket á gólfi.
Stofa með parketi á gólfi. Útgengt er á stórar svalir úr stofu.
Baðherbergi með glugga. Innrétting frá HTH. Walk in sturta. Upphengt salerni. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi að hluta til undir súð. Parket á gólfi
Herbergi II að hluta til undir súð Parket á gólfi
Fjögur bílastæði eru á lóð.
Allar innréttingar, skápar við inngang og í hjónaherbergi eru frá HTH og eldhústæki frá AEG. Parket eignar eru frá Álfaborg. Innihurðir frá Birgisson.
Loftskiptakerfi með endurvarma frá Systemair í eigninni.
Lóðin er þökulögð en hellulagt er að framan móts við innganga og stiga. Sérafnotareitir eru hellulagðir.
Skemmtileg og vel staðsett eign með óhindruðu sjávarútsýni á þessum rólega stað í Borgarnesi.
Athygli er vakin á því að myndir í auglýsingu eru af sambærilegri eign til þess að átta sig á innréttingum.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita Kristján Baldursson Löggiltur Fasteignasali í síma 867-3040 eða [email protected] eða Sólveig Regína Biard Löggiltur Fasteignasali í síma 869-4879 eða [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.