Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado
Vista
einbýlishús

Smáravegur 10

620 Dalvík

66.900.000 kr.

425.302 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2155230

Fasteignamat

44.600.000 kr.

Brunabótamat

68.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1959
svg
157,3 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala 

Smáravegur 10, Dalvík 

Um er að ræða mikið endurnýjað fjögurra herbergja 157,3 fm. einbýlishús á einni hæð ásamt kjallara. Góð verönd til suðurs með heitum potti og góð bílastæði við húsið. 

Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, forstofu/bakdyrainngangur og í kjallara er þvottahús og tvö mjög rúmgóð rými sem nú eru nýtt sem geymsla og gestaherbergi. 

Forstofa
með flísum á gólfi. 
Hol með parket á gólfi. 
Stofa með paket á gólfi, gluggar til tveggja átta. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með parket á gólfi og eru fataskápar í tveimur þeirra. 
Baðherbergi
með flísum á gólfi og veggjum í sturturými. Opnanlegur gluggi, handklæðaofn, upphengt wc og lítil innrétting við vask. 
Eldhús
með flísum á gólfi, góð innrétting í eldhúsi með góðu vinnuplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél, bakaraofn auk örbylgjuofn í vinnuhæð. 
Forstofa/bakdyrainngangur að austan við hús með aðgengi úr eldhúsi, rúmgóð forstofa með flísum á gólfi og farið þaðan niður í kjallara. 
Kjallari með lofthæð ca. 210 cm. þar er rúmgott þvottahús með opnanlegum glugga, flísar á gólfi. Þar fyrir innan eru tvö rúmgóð rými. Annað þeirra er notað sem gestaherbergi og hitt sem geymsla. 
Geymsluskúr á lóð er óeinangraður. 

Annað:
- Eins og áður segir hefur eignin verið mikið endurnýjuð, að sögn eiganda hefur allt rafmagn í húsinu sem og allar vatnslagnir frá inntaki, bæði ofna/hitalagnir og neysluvatn.
- Búið að endurnýja klóak lagnir bæði inni og út í götu.
- Allt gler endurnýjað og að auki hafa gluggar í kjallara verið endurnýjaðir. Eftir að skipta um tvo glugga og þeir eru til. 
- Allt hitakerfi hússins er endurnýjað frá inntaki. Ný hitagrind sett upp við inntak og gólfhiti settur í kjallara ásamt þeim stöðum þar sem flísar eru. Nýjir ofnar og ofnalagnir á öðrum stöðum. Nýjar útihurðir en eftir er að klára frágang.
- Búið er að jarðvegsskipta framan við hús og sett þar perlumöl, mjög góð bílastæði. Steypt stétt að húsinu og timburverönd með timburskjólveggjum sunnan við hús.  
- Ljósleiðari tengdur. 
- Rafmagnspottur 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. des. 2017
17.200.000 kr.
32.500.000 kr.
157.3 m²
206.612 kr.
24. feb. 2015
16.700.000 kr.
14.600.000 kr.
157.3 m²
92.816 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone