Opið hús: Sléttahraun 25, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 02 01 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. febrúar 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Íbúðin er skráð 58,2 m2 og þar af geymsla 6,5 m2 og skiptist í forstofu, baðherbergi, svefnherbergi, eldhús, björt stofa og borðstofa með útgengt út á svalir, og sameiginlegt þvottahús á sömu hæð með þægilegu aðgengi og hver. Húsið var sprunguviðgert og málað 2019 og einnig var skipt um glugga og gler að hluta. Skipt var um teppi í sameign og málað 2023. Þak var yfirfarið 2018.
Fasteignamat fyrir árið 2026 verður 45.900.000kr.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri með fatahengi og parket á gólfi.
Eldhús með nýlegri eldhúsinnréttingu, efri og neðri skápar, ofn í vinnuhæð, helluborð, tengi fyrir uppþvottavél, gert er ráð fyrir ísskáp í innrétingunni og parket á gólfi. Eldhús og stofa mynda eitt stórt rými.
Stofa og borðstofa er björt með stórum gluggum og parket á gólfi. Úr stofunni er útgengt út á rúmgóðar suðurvestur svalir.
Svefnherbergi rúmgott og bjart með nýlegum fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn, speglaskápur, flísalagðir veggir að hluta og flísar á gólfi.
Þvottahús er á hverri hæð og því aðeins 3 íbúðir með hvert þvottahús og hver íbúð með sitt tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins skráð 6,5 fm og er inn í fermetratölu íbúðar.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
Garður er sameiginlegur, stór og gróinn með leiktækjum.
Skv. eignaskiptayfirlýsingu fylgir íbúðinni réttur til byggingar bílskúrs.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.