Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Elín D. Guðmundsdóttir
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
raðhús

Unufell 42

111 Reykjavík

107.900.000 kr.

677.764 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2053081

Fasteignamat

92.500.000 kr.

Brunabótamat

84.710.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1973
svg
159,2 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 17. febrúar 2026 kl. 12:15 til 12:45

Unufell 42 - Fallegt og mikið endurnýjað endaraðhús á einni hæð með bílskúr. Opið hús þriðjudaginn 17 febrúar kl. 12.15-12.45. Verið velkomin.

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallegt og vel skipulagt endaraðhús á einni hæð með bílskúr við Unufell í Reykjavík. Eignin sem hefur hlotið gott viðhald er skráð 159,2 fermetrar og þar af er bílskúr 22,2 fermetrar. Falleg skjólsæl baklóð er til suður með afgirtri viðaverönd og garði. Möguleiki að tenga heitan pott.

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á liðnum árum og þar á meðal eldhús, gólfefni, baðherbergi og hurðar. Húsið skiptist í forstofu, þvottaherbergi, sjónvarpshol, eldhús, gang, þrjú barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, stofu og borðstofu með útgengi á baklóð. 


Lýsing:
Forstofa,
flísalögð með fataskáp.
Þvottaherbergi, flísalagt með tengi fyrir vélum, heitu og köldu vatni, hillum og vinnuborði. Aðgengi er þar að stóru geymslulofti yfir mest allri hæðinni. 
Hol, parketlagt, rúmgott með aukinni lofthæð og þakglugga.
Eldhús, parketlagt, rúmgott, nýleg Kvik innrétting, tveir ofnar í vinnuhæð, innbyggður ískápur, innbyggð uppþvottavél, góður búrskápur, stór eyja með spanhelluborði og borðaðstöðu.
Borðstofa / stofa, í einu rými með aukinni lofthæð og útgengi á fallega afgirta viðarverönd og þaðan í garð. Möguleiki er að tengja heitan pott. 
Barnaherbergi I, parketlagt og með fataskápum.
Barnaherbergi II, parketlagt og með fataskápum.
Gangur, parketlagður með fataskápum á heilum vegg.
Baðherbergi, nýlega endurnýjað, flísalagt gólf og veggir, upphengt wc, innrétting, skápar, handklæðaofn, baðkar og flísalögð sturta.
Hjónaherbergi, rúmgott, parketlagt með fataskápum og útgengi á verönd. 
Barnaherbergi lll, parketlagt

Bílskúr er með rafmagni, hita og rennandi vatni. Rafmagnsopnari er á bílskúrshurð. 

Húsið að utan virðist vera í góðu ástandi og þakjárn er endurnýjað. Fallegt aðgengi er að eignin með hellulögðum stéttum með snjóbræðslu og skjólsælli baklóð til suðurs með viðarverönd, garði og fallegum trjágróðri.

Staðsetning eignarinnar er góð á grónum og rólegum stað við Unufell í Breiðholti þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, leiksvæði, verslanir, þjónustu o.fl. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er væntanlegum kaupendum því bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. sep. 2024
87.800.000 kr.
96.400.000 kr.
100101 m²
963 kr.
9. sep. 2021
59.050.000 kr.
74.900.000 kr.
159.2 m²
470.477 kr.
29. jún. 2021
59.050.000 kr.
67.000.000 kr.
159.2 m²
420.854 kr.
23. sep. 2019
52.900.000 kr.
60.500.000 kr.
159.2 m²
380.025 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone