Opið hús: Hverafold 25, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. febrúar 2026 milli kl. 15:50 og kl. 16:10.
Lýsing
Myndband
https://vimeo.com/fasteignamyndbond/hverafold25
Íbúðin er laus við kaupsamning
Nánari lýsing
Forstofa: flísar á gólfi og stór fataskápur. Skápahurðir nýsprautaðar.
Svefnherbergi: stór fataskápur með nýsprautuðum skápahurðum og nýtt parket á gólfi.
Barnaherbergi: rúmgott með nýju parketi.
Baðherbergi: flísar á gólfi, baðkar með sturtuaðstöðu og gert ráð fyrir þvottavél. Nýr skápur, ný handlaug, blöndunartæki og baðinnrétting.
Eldhús: snyrtileg innrétting frá 2021 og gott skápapláss þar sem m.a. er gert ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa/borðstofa/eldhús: í opnu og björtu rými með útgengi á svalir.
Sérgeymsla: rúmgóð 6 fm sérgeymsla í kjallara fylgir íbúðinni með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Geymslan var máluð í janúar 2026. Snúrur eru í geymslunni. Í kjallara er einnig sameiginleg geymsla.
Viðhald og endurbætur: Íbúðin öll máluð í desember 2025, Nýtt parket lagt í desember 2025, Fataskápar sprautulakkaðir í desember 2025, Nýr gluggi í barnaherbergi og forstofu 2024, Nýjar útihurðir 2024
Eldhúsinnrétting endurnýjuð 2021.
Á næstunni þarf að skipta um þakjárn en ekki er búið að ákveða neitt í þeim efnum enn. Þess má geta að þessi íbúð ber eingöngu 5% af heildarkostnaði þakskipta. Skipta á um rúðu (móða á milli glerja) í stærra svefnherberginu en umræður eru um að það verði gert á vegum húsfélagsins á næstunni.
Íbúðin er 3ja herbergja í dag en er skráð sem 2ja herbergja samkvæmt teikningum og eignaskiptasamningi en eldhús var fært í stofuna og barnaherbergi útbúið þar sem eldhúsið var áður.
Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali. Netfang: [email protected] - s: 775-1515
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.