Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Vel skipulagt 94,0 m2 raðhús á einni hæð við Arnartanga 46 í Mosfellsbæ. Eignin skiptisti í fjögur svefnherbergi, baðherbergi, geymslu, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Afgirtur bakgarður með timburveröndum í suðurátt. Vinsæl staðsetning í grónu hverfi í Mosfellsbæ, stutt frá skóla, leikskóla, verslun og allri helstu þjónustu.
Samkvæmt upplýsingum frá seljanda var skipt um þak á eigninni árið 2013.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent.
Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með innréttingu, vegghengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu. FIBO- baðplötur á veggjum og dúkur á gólfi.
Eldhús er með innréttingu og parketi á gólfi. Í innréttingu er eldavél, ofn, vifta og uppþvottavél sem fylgir með.
Stofa og borðstofa er í stóru og björtu opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á timburverönd og afgirtan bakgarð í suðurátt.
Verð kr. 74.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.