Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Kjarnagata 33 íbúð 501

600 Akureyri

59.500.000 kr.

834.502 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2299280

Fasteignamat

54.450.000 kr.

Brunabótamat

39.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2016
svg
71,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Lyfta
Opið hús: 19. febrúar 2026 kl. 16:15 til 17:00

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Kjarnagata 33 íbúð 501 - Skemmtileg 2-3ja herbergja útsýnisíbúð á 5.hæð / efstu í fjölbýli með lyftu í Naustahverfi - stærð 71,3 m²

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og tvær geymslur, önnur innan íbúðar sem hefur verið notuð sem svefnherbergi og svo sér geymsla á jarðhæðinni. 

Forstofa er með flísum á gólfi og þreföldum spónlögðum eikar fataskáp. 
Eldhús, vönduð spónlögð innrétting með flísum á milli skápa. Uppþvottavél er innfelld í innréttingu og fylgir með við sölu eignar. Borðkrókur með skemmtilegum útsýnisglugga til austurs. 
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem parket er á gólfi, gluggar til þriggja átta og hurð til suðurs út á steyptar 10,0 m² svalir.
Svefnherbergið er með parketi á gólfi og stórum spónlögðum eikar fataskáp. Stærð herbergi er skv. teikningum 12,3 m².
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, spónlagðri eikar innréttingu og speglaskáp, upphengdu wc, sturtu og handklæðaofni. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. 
Geymsla innan íbúðar er skráð skv. teikningum 8,8 m² að stærð og hefur verið notuð sem svefnherbergi. Þar er parket á gólfi og tvöfaldur spónlagður eikar fataskápur og opnanlegur gluggi til norðurs. 
Sér geymsla er á jarðhæðinni skráð 4,2 m² að stærð.

Annað
- Íbúðin er að stærstum hluta ný máluð að innan.
- Hiti er í öllum gólfum.
- Mynddyrasími.
- Snyrtileg sameign.
- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæðinni.
- Stutt í leik- og grunnskóla.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. des. 2017
25.150.000 kr.
31.250.000 kr.
71.3 m²
438.289 kr.
14. jún. 2016
1.630.000 kr.
23.500.000 kr.
71.3 m²
329.593 kr.
19. jún. 2008
1.000.000 kr.
712.255.000 kr.
13508.4 m²
52.727 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone