Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Hraunbær 151

110 Reykjavík

87.900.000 kr.

813.136 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2516305

Fasteignamat

79.700.000 kr.

Brunabótamat

68.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
108,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Lyfta
Opið hús: 24. febrúar 2026 kl. 16:30 til 17:00

OPIÐ HÚS: Hraunbær 151, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 03-07. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 24. febrúar á milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir í sölu afar bjarta og rúmgóða 4 herbergja íbúð í nýlegu og viðhaldsléttu lyftufjölbýli við Hraunbæ 151 (Bæjarháls megin). Eignin er skráð í heildina 108,1 m2 að stærð ásamt geymslu á jarðhæð. Vandaðar innréttingar (HTH) og tæki (AEG) frá Ormsson. Gólfefni frá Ebson. Gluggartjöld frá Sólargluggatjöldum. Blöndunartæki frá Tengi. Eignin skiptist í anddyri með skápum, herbergjagang, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með gólfsturtu og þvottaaðstöðu, rúmgott alrými sem rúmar stofu, borðstofu og opið eldhús, en svo eru einnig rúmgóðar svalir til suðurs. Fallegt útsýni er úr íbúðinni og fjallasýn frá suð-austri til suð-vesturs. Staðsetningin er frábær þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni, þ.m.t. verslanir, heilsugæsla, skólar, leikskólar, líkamsrækt, sund ofl. Hafið samband við Aðalstein Bjarna lgf. í síma 773-3532 eða [email protected] fyrir nánari upplýsingar og skoðun.

Eignin Hraunbær 151 er skráð sem hér segir hjá fasteignaskrá HMS: Eign 251-6305, birt stærð 108.1 fm.

Nánari lýsing og skipting eignarhluta:
Forstofa er með fallegu harðparketi og vönduðum fataskáp sem innfelldur er í vegg og nær upp í loft.
Gangur er þægilega breiður og liggur inn í alrými með fallegu harðparketi.
Svefnherbergi (1) með fallegu harðparketi og góðum glugga.
Svefnherbergi (2) með fallegu harðparketi og góðum glugga.
Baðherbergi er með snyrtilega og stílhreina innréttingu með vaskskáp og veggskáp með speglahurðum. Rúmgóð gólfsturta (walk-in) og skilrúm úr stóru hertu gleri ásamt vegghengdu salerni og handklæðaofni á vegg. Ráð er gert fyrir þvottavél í vinnuhæð með neðri skáp/skúffu fyrir neðan og borðplötu fyrir ofan, þar sem eru snúrur, en líka hægt að setja þurrkara. Vandaðar flísar á gólfi og veggjum við sturtu og salerni.
Rúmgott og bjart alrými er við enda á gangi, sem rúmar vel eldhús borðstofu og setustofu. Fallegt harðparket á gólfi.
Eldhús er opið og með fallegri L-laga innréttingu með nægu skúffu og skápaplássi. Innréttingin er afar smekkleg í fallegum í ljósum beige / sandlit og með borðplötu í mildum ljósum tón. Á milli efri og neðri skápa er gluggi með opnanlegu fagi sem hleypir morgunbirtunni inn.
Nægt pláss er fyrir borstofu og veglegt borðstofuborð við eldhús og útgengi er á svalir við glugga.
Svalir eru nokkuð rúmgóðar og djúpar með útsýni yfir Árbæ og sjá má fjallagarðinn í fjarska.
Stofan er rúmgóð og gæti rúmað bæði sjónvarpshol og setustofu.
Hjónaherbergi er inn af stofu og er rúmgott með glugga á tvo vegu, fallegu harðparketi og vönduðum fataskápum.
Sameignin er öll snyrtileg með lyftu og teppalögðum stigagangi, ásamt myndavélasíma og sjálfvirkri hurðaopnun í anddyri. Vélrænt loftræstikerfi er í húsinu og íbúðum með útsogi og ferskloftsventlum.
Á lóðinni eru bílastæðaplön sunnan og norðan megin við húsið. Grunnkerfi fyrir rafbílahleðslu. Lýsing er við gönguleiðir á lóð og bílastæði. Snjóbræðsla er í göngustétt og áætlað er að leiksvæði sé í húsasundi á milli húsa.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Aðalsteinn Bjarnason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Aðalsteinn Bjarnason

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. jan. 2024
71.550.000 kr.
79.400.000 kr.
108.1 m²
734.505 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Aðalsteinn Bjarnason

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ