Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Vista
svg

33

svg

31  Skoðendur

svg

Skráð  22. feb. 2026

fjölbýlishús

Asparskógar 18 - íbúð 202

300 Akranes

48.500.000 kr.

909.944 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2519866

Fasteignamat

34.750.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2023
svg
53,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Lyfta
svg
Laus strax
Opið hús: 24. febrúar 2026 kl. 12:15 til 12:45

Opið hús: Asparskógar 18 - íbúð 202, 300 Akranes, Íbúð merkt: 01 02 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 24. febrúar 2026 milli kl. 12:15 og kl. 12:45.

Lýsing

Björt og falleg 2ja herb. íbúð á 2. hæð í glæsilegri og vandaðri nýbyggingu í rólegu hverfi á Akranesi.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Sjöfn Hilmarsdóttir, lgf. // s. 691-4591 // [email protected]


Domusnova Borgarnesi hefur til sölu 2ja - 5 herbergja íbúðir við Asparskóga 18 á Akranesi. Þriðji og síðasti hluti byggingar er nú kominn í sölu og eru tilbúnar til afhendingar 14 glæsilegar eignir, stærðir frá 56,8 - 130,1 fm. 

Asparskógar 18 er virkilega vandað og vel skipulagt 40 íbúða fjöleignarhús á 2-5 hæðum. Húsið er byggt upp með forsteyptum einingum, einangrað og klætt að utan með ál- og timburklæðningu. Þak er steinsteypt með ásoðnum tjörupappa, einangrað og með PVC dúk. Lyftur eru í tveimur opnum stigahúsum, bílastæði og sérgeymslur er í kjallara hússins sem fylgir völdum eignum hússins. Innan lóðar eru 32 bílastæði og þar af er gert ráð fyrir 14 hleðslustæðum. Íbúðir skilast fullbúnar að innan með vönduðum innréttingum ásamt gólfefnum. Ljós eru innbyggð að hluta. 
 
Ýtið hér til að skoða og sjá nánar um eignir: Heimasíða - Asparskogar.is
Ýtið hér til að skoða skilalýsingu eigna: Skilalýsing - Asparskógar 18
Húsbyggjandi: Ferrum fasteignafélag 
Aðalhönnuður: Al-Hönnun ehf.

Íbúð 202 er 53,3 fm. með sérinngang, eignin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, eitt svefnherbergi og baðherbergi með þvottarými. 
* 2ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngang 
* Stærð 53,3 fm.,
* Svalir, 8,5 fm. í norðaustur
* Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla


Nánari lýsing:
Anddyri:
 Flísar á gólfi.
Gangur: Tvöfaldur hvítur fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Vönduð brún Nobilia innréttingar með hvítum efri skápum frá GKS innréttingum. Raftæki frá AEG, veggofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti. Vifta er frá Elica. Eldhúsvaskur og blöndunartæki er svart að lit og er frá Tengi. Harðparket á gólfi. 
Stofa: Útgegnt út á 8,5 fm. svalir. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með brúnni borðplötu og hvítri handlaug. Speglaskápur yfir handlaug. Upphengt salerni með hæglokandi setu, WALK IN sturta og handklæðaofn. Hitastýrð blöndunartækin frá Tengi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Veggflísar og gegnheilar flísar á gólfi.
Svalir: Snúa í norðaustur og eru 8,5 fm. Útiljós á svölum. Vatnsvarinn tengill.

Sameign: Á 1. hæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Rafmagnstöflur og rafmagnsmælar íbúða er staðsett í sameigninni.
Lóð/bílastæði: Lóðin er 3325,0 fm. Innan lóðar eru 32 bílastæði, þar af eru 14 sérmerkt f. rafmagnsbíla og 3 fyrir hreyfihamlaða. Lóðin verður afhent fullbúin í lok byggingartímans. Bílastæði við götu eru malbikuð. Tengibúnaður (ídráttarrör) vegna hleðslu rafbíla er aðgengilegt við bílastæði. Milli húss og bílastæða við götu eru hellulagðar stéttar.

Annað: Ljósleiðari er tengdur inn í húsið og endar í tengikassa hverrar íbúðar. Netdreifikerfi er í íbúðinni. Ljósbreytir við tengikassa kemur frá símafélagi íbúans.
Sorpgeymslur eru niðurfelldar á lóð (djúpgámar).

EIGNIN ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR


Nánari upplýsingar veita: 
Sjöfn Hilmarsdóttir, lögfr. & löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / [email protected]
Skrifstofa Domusnova / s.527-1717 / [email protected]
 

Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone