Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Borga Harðardóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Vista
raðhús

LANGAHRAUN 8

810 Hveragerði

69.900.000 kr.

689.349 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2510360

Fasteignamat

74.200.000 kr.

Brunabótamat

51.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
101,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu Langahraun 8, Hveragerði.
Falleg endaíbúð í fjögurra íbúða raðhúsi á frábærum stað.
Eignin er samtals 101,40 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. 
Íbúðin telur forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu, og alrými sem í eru stofa og eldhús.
Íbúðin er nýlegu, skemmtilegu hverfi í Kambalandi, efst í bæjarfélaginu.

** Fasteignamat eignarinnar er kr. 74.200.000 **


Lýsing eignar:
Forstofa
: komið er inn í flísalagða forstofu. Þar er fataskápur..
Stofa: eldhús og stofa eru saman í opnu og björtu rými. Útgangur á skjólgóðan pall í bakgarði.
Eldhús: er opið inní stofu. Þar eru efri og neðri skápar, bakarofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
Baðherbergi: er flísalagt, upphengt wc, "walk-in sturta", handklæðaofn og innrétting.
Þvottahús: er opið pláss inn af baðherbergi, gert ráð fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð í góðri innréttingu.
Svefnherbergin eru þrjú:
Svefnherbergi: gengið er til hægri í herbergið frá forstofunni. Tvöfaldur fataskápur.
Svefnherbergi: gengið er til vinstri í herbergið frá forstofunni. Tvöfaldur fataskápur.
Hjónaherbergi snýr út í garð. Fjórfaldur fataskápur.
Gólfhiti er í eigninni, harðparket á gólfum en flísar á votrýmum, hvítar innihurðar.
Sólpallur í bakgarði. Heitur pottur, skyggni fyrir grill.
Möl í rúmgóðu bílaplani, þrefalt sorptunnuskýli. 

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. sep. 2020
4.750.000 kr.
24.800.000 kr.
101.4 m²
244.576 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone