Opið hús: Smyrlaheiði 43, 810 Hveragerði, Íbúð merkt: 10 01 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 25. febrúar 2026 milli kl. 16:40 og kl. 17:40.
Lýsing
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða [email protected]
Fasteignamat fyrir árið 2026 skv. HMS er 72.400.000kr.
Gott aðgengi, bæði utan og innandyra er ríkur þáttur í hönnun hverfisins. Allar íbúðirnar eru án þröskulda og sem minnstur hæðamunur er hafður utandyra. Húsin og hverfið eru hönnuð af Zeppelin Arkitektum og byggð af Eðalhúsum. Hönnun hverfisins tekur að nokkru leyti mið af gömlu gróðurhúsunum sem lengi hafa verið eitt helsta kennileiti Hveragerðis. Einstaklega fallegur, vel skipulagður og metnaðarfullur byggðarkjarni í rólegu og fallegu hverfi í Hveragerði. Gott aðgengi er fyrir hjólastóla í öllum íbúðum samstæðunnar.
Á lóðinni stendur tveggja hæõa samkomuhús sem er í sameign allra raðhúsanna á lóðinni. Þar hafa eigendur aðgang að vel búnum veislusal, kaffistofu og samverustað. Á lóðinni eru 54 sameiginleg bílastæði, þar af 24 í vistgötum og 30 gestastæði.
Nánari lýsing:
Anddyri: Komið inn í flísalagt anddyri með fjórföldum fataskáp.
Svefnherbergi I: Rúmgott með tvöföldum fataskáp. Gluggakista er djúp og getur nýst sem hugguleg setu-, lestrar- eða slökunaraðstaða.
Svefnherbergi II: Rúmgott með mjög góðu skápaplássi. Gluggakista er djúp og getur nýst sem hugguleg setu-, lestrar- eða slökunaraðstaða.
Alrými: Opið, bjart og fallegt alrými með samliggjandi stofu, borðstofu og eldhúsi. Einstaklega fallegt rými með mikilli lofthæð og stórum gólfsíðum gluggum.
Eldhús: Eikar innrétting með eyju. Gott skápa og vinnupláss. Ofn í vinnuhæð, innbyggt helluborð og háfur. Aðstaða fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Opið við borðstofu og stofu.
Stofa: Opin, björt og falleg með mikilli lofthæð og í góðri tengingu við eldhús. Útgengt út á vestur viðarverönd þar sem sólin kemur inn á pall um kl. 13 og er fram á kvöld.
Sérafnotaflötur: Aflokuð viðarverönd til vesturs. Útgengt út á sérafnotaflöt úr stofu.
Svefnherbergi III: Innaf stofu. Rúmgott með fataskáp. Möguleiki á að taka niður vegg og stækka þannig stofurými. Auðvelt í framkvæmd fyrir fagmenn.
Baðherbergi: Stórt baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara sem hægt er að loka af með rennihurð. Rúmgóð þröskuldalaus sturta með sturtuhengi, upphengt salerni, handklæðaofn ásamt baðinnréttingu með efri og neðri skápum, innfeldum vask í neðri innréttingu og spegli fyrir ofan vask.
Geymsla I: Innaf íbúð, 3,3fm nettó. Rafmagnstafla ásamt gólhitakerfi í lokuðum skápum í geymslu innan íbúðar.
Bílastæði: Eigninni fylgir stæði í bílakjallara. Búið er að leggja fyrir uppsetningu á rafmagnshleðslustöð hjá bílastæði. Sameiginleg aðstaða til bílaþrifa. Sér geymsla innaf bílastæði
Geymsla II: 7,3 fm geymsla innaf bílastæði í bílakjallara.
Gólfefni: Parket er á öllu rýminu nema baðherbergi og anddyri en þar eru flísar. Gólfhiti er í allri eigninni.
Samkomuhús: Tveggja hæõa samkomuhús sem er í sameign allra raðhúsanna á lóðinni. Þar hafa eigendur aðgang að vel búnum veislusal, kaffistofu og samverustað.
Hver íbúð á reitnum hefur sérmerkt bílastæði bílakjallara auk sameiginlegs þjónustusvæðis. 54 bílastæði eru á lóð, þar af 24 í vistgötum og 30 gestastæði. Kostnaður við gerð, viõhald og rekstur sameignilegra óskiptra bilastæða, svo og slíkur kostnaður við sameiginlegar aðkeyrslu skiptist og greiðist að jöfnu milli eiganda eigna á reitnum. Hveragerðisbær mun þó sinna nauðsynlegum snjómokstri sem tryggir aðkomu sjúkra- og slökkvibifreiða.
Bílakjallari er niðurgrafinn og liggur undir miðri lóðinni. Í bílakjallara eru 43 sérmerkt bílastæði, eitt fyrir hvern séreignarhluta auk þjónustusvæðis þeim tengdum. Í bílakjallara er sameiginlegt þvottastæði
Hitakostnaður: Sér mælir er fyrir hverja íbúð í matshlutunum og greiðir hver séreign af sínum mæli.
Rafmagnskostnaður: Sér rafmagnsmælir er fyrir hverja íbúð í matshlutunum og greiðir hver séreign af sínum mæli.
Afar fallegt og vel skipulagt 4ja herbergja raðhús með sérmerkt bílastæði í upphituðum bílakjallara ásamt fríu og frjálsu aðgengi að sameiginlegu samkomuhúsi. Einstakleg vel heppnað og fallegt hverfi með einstök sameignargæði sem finnast ekki víða. Frábær staðsetning í rólegu og fallegu hverfi í Hveragerði. Hveragerði hefur upp á að bjóða alla helstu þjónustu, fjölbreytta verslun ásamt rómuðum veitingastöðum og mathöll. Þá má ekki gleyma gróðurhúsunum á staðnum, sundlaug Hveragerðis ásamt fjölbreyttu og góðu íþrótta- og tómstundarstarfi. Einungis um hálftíma keyrsla til Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur [email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.