Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Tinna Bryde
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Sjónarvegur 1

210 Garðabær

89.900.000 kr.

846.516 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2500038

Fasteignamat

88.300.000 kr.

Brunabótamat

64.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2020
svg
106,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

-Jarðhæð með palli í suðurátt
-Sérinngangur
-Eldhús með eyju
-Þvottahús innan íbúðar


Falleg og björt endaíbúð með sérinngangi og sérafnotareit í nýlegu 10 íbúða fjölbýlishúsi.
Íbúðin er skráð 106,2 fm samkvæmt HMS.
Eignin skiptist í forstofu með sérinngangi, hol, baðherbergi, tvö svefnherbergi (annað með fataherbergi hitt með fataskáp) þvottahús innan íbúðar og aðalrými með eldhúsi, borðstofu og stofu.
Úr eldhúsi er útgengt út á verönd til suðurs.
Allar innréttingar eru samrýmdar frá HTH og ljós kvartssteinn er á borðum í eldhúsi og á baðherbergi.
Rafmagnshleðslustöðvar eru á bílastæði.
Gott útsýni er úr íbúðinni og stutt í alla þá útivist sem Urriðaholtið hefur upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í síma nr: 775-4000 / [email protected]
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 / [email protected]


Nánari lýsing: 
Forstofa: Gengið er inn um sérinngang inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og stórum fataskáp.
Eldhús: Eldhús eignarinnar er með fallegri innréttingu frá HTH og með ljósum kvartsstein á borðum. Span helluborð með háf yfir er á eyju sem hægt er að sitja við og innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja með.
Stofa: Stofa eignarinnar er mjög rúmgóð og björt og rúmar einnig borðstofu. Gluggar eru í þrjár áttir og fallegt útsýni er til norðurs.
Baðherbergi: baðherbergið er með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta. Stór sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni, grá innrétting með ágætis skápaplássi og handklæðaofn er á baðherberginu.
Svefnherbergi: herbergin eru tvö bæði með harðparketi á gólfi, fataskápar eru í öðru herberginu og gott fataherbergi með innréttingum í hinu.
Þvottaherbergi: innan íbúðar er þvottaherbergi með flísum á gólfi og skáp á vegg. 
Sérafnotareitur:  Útgengt er á verönd og sérafnotareit í suður. Húsfélag hefur samþykkt byggingu skjólveggs á sérafnotareitnum.
Sérgeymsla fylgir eigninni og er skráð 2,7 fm sem er meðtalið í fm fjölda íbúðar. Hátt er til lofts og nýtist plássið vel.

Í næsta nágrenni er skóli, leikskóli, kaffihús og fleiri þjónusta í þessu vel skipulagða og nýlega hverfi.

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. maí. 2023
67.600.000 kr.
72.900.000 kr.
106.2 m²
686.441 kr.
23. okt. 2020
22.550.000 kr.
54.900.000 kr.
106.2 m²
516.949 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík