Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Vista
fjölbýlishús

Holtsvegur 14

210 Garðabær

107.500.000 kr.

881.148 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2353192

Fasteignamat

97.750.000 kr.

Brunabótamat

82.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2016
svg
122 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 3. mars 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Holtsvegur 14, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 04 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 3. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Nýtt á skrá! Holtsvegur 14 Garðabæ - Falleg 4ra herb. íbúð á efstu hæð með tvennum svölum, aukinni lofthæð (2,67m) og glæsilegu útsýni.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar glæsilega 122,0 fermetra 4ra herbergja útsýnisíbúð á fjórðu hæð (efstu) með tvennum svölum til suðurs og vesturs við Holtsveg 14 í Garðabæ. Fallegt lyftuhús byggt árið 2016. Aðeins tvær íbúðir á hæðinni. Íbúðin er björt og með stórum gólfsíðum gluggum til suðurs, vesturs og norðurs. Virkilega vel skipulögð íbúð með stóru alrými. Rúmgóð svefnherbergi (hjónaherbergi sérstaklega rúmgott með fataherbergi). Vandað eldhús með stórri eldhúseyju.  Myndavéladyrasími er í húsinu.

Um er að ræða afar fallega íbúð á eftirsóttum stað við Holtsveg í Garðabæ. Útsýni frá íbúðinni er afar glæsilegt til suðvesturs, vesturs og norðurs, m.a. yfir Urriðavatn og til fjalla. Lóðin er vel hirt með tyrfðum flötum, stéttum með snjóbræðslu, kvöldlýsingu og gróðri þess á milli. Rafhleðslustaurar á lóðinni og næg bílastæði. Húsin eru fallega hönnuð og sá VHE ehf. um framkvæmd á húsinu og innanhúshönnuðurnir Berglind Berndsen og Helga Sigurbjarnadóttir hönnuðu innréttingar.

Staðsetning er virkilega góð þar sem stutt er í verslanir, veitingastaði, kaffihús, leikskóla (Urriðaból I og Urriðaból II), grunnskóla (Urriðaholtsskóla) og glæsileg útivistarsvæði. Oddur golfvöllur, Urriðavatn og Heiðmörk í göngufjarlægð. Staðsetning í lokuðum rólegum botnlanga.

Nánari lýsing: 

Forstofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og góðum háum skápum.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri dökkri eldhúsinnréttingu með stórri eldhúseyju. Stál Electrolux bakaraofn, helluborð, innbyggð Siemens uppþvottavél, innbyggður Siemens kæliskápur með frysti og eyjuháfur. Gólfsíðir gluggar til vesturs og norðurs með glæsilegu útsýni út á sundin, að Snæfellsjökli, Snæfellsnesi og víðar. Eldhús er opið við stofu og með útgengi á svalir I.
Svalir I: Snúa til vesturs með fallegu útsýni út á sundin, að Snæfellsjökli og víðar.
Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi og gólfsíðum gluggum til suðurs og vesturs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á svalir II.
Svalir II: Snúa til suðurs með glæsilegu útsýni yfir Urriðavatn og til fjalla.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili, falleg innrétting við vask. Upphengt innbyggt salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi: Er stórt með harðparketi á gólfi, fataherbergi og glugga til norðurs.
Svefnherbergi II: Er rúmgott með harðparketi á gólfi og glugga til suðurs. Góðir skápar. Fallegt útsýni yfir Urriðavatn og til fjalla.
Svefnherbergi III: Er rúmgott með harðparketi á gólfi og glugga til suðurs. Góðir skápar. Fallegt útsýni yfir Urriðavatn og til fjalla.

Sérgeymsla: Í kjallara sem er 8,9 fermetrar. Málað gólf og hillur.

Í sameign er aðgengi að: Sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu sem er snyrtileg með máluðu gólfi. Stigagangur og sameign er mjög snyrtileg.

Um er að ræða frábæra staðsetningu í Urriðaholti í Garðabæ þar sem stutt er í fallegar göngu- og hjólaleiðir. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 / [email protected]

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. ágú. 2020
53.950.000 kr.
66.000.000 kr.
122 m²
540.984 kr.
27. feb. 2017
45.700.000 kr.
49.800.000 kr.
122 m²
408.197 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur