Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1983
66,5 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 3. mars 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Fiskakvísl 13, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 3. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna:
Fiskakvísl 13 – Björt og einstaklega notaleg jarðhæð með garði í grónu og vinsælu hverfi í Ártúnsholti
Eignin er hönnuð af Kjartani Sveinssyni og er björt, rúmgóð og hlý jarðhæðaríbúð með útgengi í gróinn garð – fullkomin fyrsta eign eða notalegt heimili fyrir þá sem vilja rólegt og fjölskylduvænt umhverfi.
Íbúðin er skráð tveggja herbergja en býður upp á möguleika á að skipta svefnherberginu aftur í tvö minni herbergi.
- Frábær fyrstu kaup
- Viðarverönd og fallegur garður
Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða [email protected]
Skipulag:
Komið er inn í anddyri og þaðan opnast rýmið inn í bjarta og rúmgóða stofu með opnu eldhúsi. Franskir og stórir gluggar í suður gefa fallega birtu inn í rýmið.
Árið 2023 var opnað út í garð með svalahurð og byggður sólpallur – sem skapar frábæra tengingu við útisvæðið.
Svefnherbergið er mjög rúmgott með fjórum gluggum sem snúa í suður og austur. Hægt er að skipta herberginu upp í tvö minni herbergi ef þörf er á.
Baðherbergið var endurnýjað árið 2021 með flísum á veggjum og gólfi, háglans innréttingu og rúmgóðum sturtubotni.
Garður & hverfi
Garðurinn er gróinn og vel hirtur. Á sumrin blómstra rósir, gullsópur, graslaukar og litríkir runnar sem skapa notalega stemningu. Umsjón garðsins er keypt af húsfélaginu.
Hverfið er einstaklega vinsælt og fjölskylduvænt – aðeins um 100 metra ganga í tvo leikskóla og grunnskóla. Stutt er í sundlaug, þjónustu og fallegar gönguleiðir.
Húsfélag:
Húsfélagsgjöld eru um 10.499 kr. á mánuði og félagið á uppsafnað fé.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. maí. 2021
30.550.000 kr.
33.500.000 kr.
66.5 m²
503.759 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026