Lýsing
Rúmgott 308fm. atvinnu/iðnaðarhúsnæði að gólffleti á einni hæð ásamt um 120fm. millilofti sem er ekki í birtum fermetrum eignarinnar.
Húsnæðið hefur verið nýtt undanfarin ár fyrir smíðavinnu úr tré, stáli og áli.
Möguleiki að selja öll tæki með húsnæðinu.
Bilið sem er merkt 0102 deilir sérafnotareit af lóð norðan við húsið með bili mertu 0101.
Aðrir eignarhlutar, þ.e. á efri hæð, deila sérafnotareit af lóð sunnan megin.
26 bílastæði eru á lóð í óskiptri sameign.
Húsnæðið er mjög rúmgott með mikilli lofthæð.
Lofthæð: 5,83M. og 5,03M undir bita í vinnurými.
Lofthæð á millilofti: 2,7M og 1,9M undir bita.
Innkeyrsluhurð er 5M á hæð og 4M á breidd.
Lengd frá innkeyrsluhurð inn í enda bilsins er um 21,3M.
Breidd bilsins er um 13,5M.
Búið er að bera epoxíð á allt vinnusvæðið og uppá veggi við innkeyrsluhurðina.
Epoxíð flex á gólfi millilofts.
Undir milliloftinu er ætluð skrifstofa og er búið að leggja fyrir gólfhita þar.
Sex eignarhlutar er í húsinu. Húsið er steinsteypt byggt árið 2002. Húsið stendur á 2.109,0 fm leigulóð með steyptu plani.
Fyrir nánari upplýsingar hafið sambandi við:
Helgafell fasteignasala - Sími 566 0000
Rúnar Þór Árnason, lgf. [email protected]
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.