Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Vista
svg

8

svg

7  Skoðendur

svg

Skráð  5. mar. 2026

fjölbýlishús

Jöfursbás 5B - íb 101

112 Reykjavík

89.900.000 kr.

841.760 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2530347

Fasteignamat

85.750.000 kr.

Brunabótamat

68.140.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
106,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 8. mars 2026 kl. 12:00 til 12:30

Opið hús: Jöfursbás 5B - íb 101 , 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 01 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 8. mars 2026 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.

Lýsing

OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 8. MARS KL 12:00-12:30 - SÖLVI ÞÓR SÆVARSSON LGF TEKUR Á MÓTI ÁHUGASÖMUM [email protected] S: 618 0064

DOMUSNOVA KYNNA:
FALLEGA 3JA - 4RA HERBERGJA ENDAÍBÚÐ AÐ JÖFURSBÁS 5B.
ÍBÚÐIN ER
 106,8 M2, þar af geymsla 13,0 fm. 
Íbúðinni fylgir stæði merkt B009 í lokuðu bílahúsi. 
Íbúðin skiptist í eldhús, stofu/ borðstofu, tvö svefnherbergi,fataherbergi og tvö baðherbergi auk sérgeymslu íbúðar í kjallara.
Aukin lofthæð allt að 280cm.
  • Aukin lofthæð.
  • Tvö baðherbergi..
  • Gólfsíðir gluggar.
  • Sér afnotaflötur.
  • Sérsmíðaðar innréttingar í öllum rýmum.
  • Quartz steinn á borðplötum og undirlímdir vaskar.
  • Vandað efnisval í tækjum og gólfefnum.
  • Gólfhiti.
  • Afar snyrtileg og glæsilega hönnuð lóð með fallegri kvöldlýsingu.
  • Hellulagðir / steyptir göngustígar sem að hluta til eru með snjóbræðslukerfi.
Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

Lýsing íbúðar:
Forstofa  með innbyggðum fataskáp sem nær til lofts.
Eldhús: Falleg innrétting með eyju, góðu skápaplássi og nær innrétting til lofts.  Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum.  Span helluborð í eyju. Útgengt á sérafnotaflöt íbúðar.
og út frá eldhúsi er stór gólfsíður gluggi.
Stofa/borðstofa: Opin og björt með góðum glugga og útgengi á sér-afnotaflöt íbúðar.  Einstakt útsýni til fjalla og sjávar.
Baðherbergi I flísalagt 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone. Upphengt salerni og handklæðaofn. Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.  Annað baðherbergi innaf hjónaherbergi.
Hjónaherbergi með vönduðum fataskáp sem nær til lofts. Gólfsíðir gluggar. Einstakt útsýni til sjávar.
Baðherbergi II inn af hjónaherbergi:  Flísalagt með "walk-in" sturtu, vönduð innrétting með steinborðplötu og niðurfelldum vaski,upphengt salerni og handklæðaofni.  Flísar á gólfi.
Barnaherbergi með góðum fataskáp sem nær til lofts.
Geymsla merkt íbúðinni í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar
Gólfefni íbúðar er harðparket en flísar á baðherbergjum.
Sér bílastæði í upphituðum bílakjallara.

Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar.

Húsið: Húsið er  klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir ál-tré gluggar frá Byko.
Verktaki: GG verktakar.
Hönnuðir: Húsið er hannað af ARKÞING Arkitektum. 

Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Allar upplýsingar á: www.gufunesid.is 

 
Í næsta nágrenni er eftirfarandi þjónusta: Verslun, skóla, leikskóla og íþróttamannvirki. Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.

Hafið samband við eftirfarandi fasteignasala til að skoða:
Vilborg Gunnarsdóttir lgfs., s. 891-8660 eða [email protected]
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Myndir í söluyfirliti þessu eru tölvugerðar og endurspegla gæði og efnisval íbúða almennt en eiga ekki endilega við um viðkomandi eign.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 

img
Vilborg Gunnarsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Domusnova fasteignasala
Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
img

Vilborg Gunnarsdóttir

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone

Vilborg Gunnarsdóttir

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur