Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1996
93 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Mjög vel skipulögð, rúmgóð og björt 93 fermetra þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð með stórum svölum til suðurs. Stór stofa með gluggum í tvær áttir, opið eldhús, tvö rúmgóð herbergi, baðherbergi með sér rými fyrir þvottavél, forstofurými með fataskáp. Heildareignin er sem fyrr segir 93 fermetrar sem skiptist í 85,5 fermetra íbúð merkt 03-0302 og 7,5 fermetra geymslu á jarðhæð merkt 03-0106. Gott rými er í kringum húsið, mikil birta og ágætt útsýni af svölum. Góð staðsetning, stutt í skóla, leikskóla og aðra þjónustu.Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða [email protected] sem einnig sýnir eignina.
Komið er inn í snyrtilegan stigagang, en anddyri og stigagangur eru byggð utan á húsið. Þegar gengið er inn í íbúðina er komið inn í flísalagða forstofu með stórum viðarlitum fataskáp. Til hægri frá forstofu eru tvö svefnherbergi, beint á móti forstofu er baðherbergi með þvottahúsi, eldhús og stofa til vinstri. Gengið er í eldhúsið úr tveimur áttum, en eldhúsinnrétting er ágætlega stór á tveimur veggjum, viðarlituð með flísum á milli skápa. Eldhús er opið að borðstofurými þar sem er stór gluggi að svölum, sem veitir mikilli birtu inn í rýmið. Stofan er björt og rúmgóð, gluggar í tvær áttir og dyr út á stórar svalir til suðurs. Baðherbergi er flísalagt á veggjum og á gólfi, með baðkari og sturtu, ásamt fallegri innréttingu. Rúmgott þvottaherbergi er inn af baðherbergi. Gott hjónaherbergi með skápum, barnaherbergi með góðum skáp. Plastparket er á gólfum, dökkgráar steinflísar á eldhúsi og forstofu, hvítar flísar á baðgólfi. Geymsla í kjallara auk hjólageymslu og vagnageymslu.
Mjög vel skipulögð íbúð, sérlega björt og vistleg stofa og eldhús. Góð staðsetning.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. nóv. 2021
43.050.000 kr.
54.500.000 kr.
93 m²
586.022 kr.
3. nóv. 2015
24.550.000 kr.
30.400.000 kr.
93 m²
326.882 kr.
14. maí. 2012
18.300.000 kr.
23.600.000 kr.
93 m²
253.763 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026