Opið hús að Bæjarlind 9 - íbúð 201 - Kópavogi, laugardaginn 14. mars 2026 á milli kl. 14:00 og kl. 14:30.
Lýsing
Rúmgóð og falleg 2ja herbergja endaíbúð á 2. hæð í vönduðu, nýlegu lyftuhúsi við Bæjarlind 9 í Kópavoginum. Húsið er álklætt með áltré gluggum og er því viðhaldslítið. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði á lóðinni. Tvennar svalir - samþykki er fyrir svalalokunum - kvarssteinn í borðplötum í eldhúsi og á baðherbergi - snyrtileg og vel umgengin sameign - myndadyrasími - vandaðar innréttingar og fataskápar frá Axis - möguleiki á að bæta við herbergi. AFHENT VIÐ KAUPSAMNING.
Eignaskiptasamningur: Eignin er tveggja herbergja íbúð 0201 á annarri hæð hússins, birt stærð 81,9 fm. Eigninni tilheyrir geymsla 0014, birt stærð 7,5 fm í kjallara hússins. Eigninni tilheyrir svalir 0207. stærð 9,9 fm á austurhlið matshlutans og svalir 0208, stærð 6,2 fm á suðurhlið matshlutans. Birt stærð séreignar 0201 mhl 02: 89,4 fm.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa með fataskápum og parketlagður gangur.
Stofa, borðstofa og eldhús er í björtu og rúmgóðu alrými með útgangi út á tvennar svalir (suður-og austursvalir). Hér væri möguleiki á að loka af rými og útbúa herbergi.
Eldhús opið inn í stofu með vandaðri innréttingu frá Axis, eldhúseyja sem hægt er að sitja við með keramik helluborði, viftuháf og góðu skúffuplássi, bakaraofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og stórum, tveimur gluggum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting, walk-in sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og gluggi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum.
Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign ásamt aðgengi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Samantekt: Glæsileg íbúð á eftirsóttum stað í Kópavoginum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Greið leið á stofnbraut.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða [email protected]
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat