Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2021
78,4 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Nýleg 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með tæplega 50 fm timburverönd til suðurs við Skógarveg 8 í Reykjavik. Íbúðinni fylgir stæði i bílgeymslu. Vandaðar innréttingar, gólfsíðir gluggar, steinn á borðum, myndavéladyrasími og gólfhiti. Íbúð 102. Húsið er byggt árið 2021. Þvottaherbergi er innan íbúðar og fataherbergi inn af svefnherbergi. Frá íbúð er gengið út á svalir með glerlokun og þaðan út á verönd.Íbúðin er skráð 78,4 fm með 5,1 fm geymslu. Sér þvottaherbergi er innan íbúðar og fataherbergi er innaf svefnherbergi.
Forstofa: Fataskápur og parket á gólfi.
Eldhús: innrétting með eyju og parketi á gólfi.
Stofa: Eldhús og stofa eru í opnu rými. Párket á gólfi. Út frá stofu er yfirbyggðar svalir og sérafnotareitur.
Hjónaherbergi er með fataherbergi inn af. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja, upphengt salerni og vönduð innrétting.
Þvottahús: Flísalagt og með innréttingu.
Sérgeymsla er í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í Reykjavík við Fossvogsdalinn þaðan sem örstutt er í fallegar gönguleiðir, þjónustu, skóla og leikskóla.
Húsið er steinsteypt, eingangrað að utan með steinull og klætt að stærstum hluta með álklæðningu. Allir gluggar eru ísteyptir timbur-álgluggar með K-gleri. Stigahús er teppalagt en anddyri flísalagt.
Byggingaraðili er Dverhamrar ehf. Arkitekt er Guðmundur Gunnlaugsson hjá Archus ehf. Raflagnahönnun er unnin af Raflausnum. Lagnahönnun og burðarþolshönnun er unnin af verkfræðistofunni New Nordic Engineering.
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. feb. 2021
5.960.000 kr.
49.900.000 kr.
78.4 m²
636.480 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026