Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Birgisson
Lína Rut Olgeirsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Bergþóra Höskuldsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Þórunnarstræti 129 íbúð 101

600 Akureyri

76.900.000 kr.

477.640 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2151985

Fasteignamat

67.000.000 kr.

Brunabótamat

70.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1965
svg
161 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

EIGNAVER FASTEIGNASALA.

Þórunnarstræti 129, íbúð á fyrstu hæð.    LAUS STRAX, LYKLAR Á SKRIFSTOFU, BÓKIÐ SKOÐUN Í S: 460-6060 

Rúmgóð og björt, 5-6 herbergja hæð í þríbýli ásamt innbyggðum bílskúr á góðum stað á neðri-Brekkunni. Íbúðin er 133,2 fm og bílskúr 27,9 fm., samtals er heildarstærð eignar 161 fm..


Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
Forstofa, fjögur svefnherbergi, hol, borðstofa og stofa í einu rými, gangur, baðherbergi, eldhús, þvottahús og geymsluherbergi inn af þvottahúsi sem vel má nota sem svefnherbergi.
Að auki er í séreign, bílskúr á jarðhæð og geymsla undir útitröppum að austan.

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi. 
Hol, parket á gólfi.
Eldhús með rúmgóðri sprautulakkaðri innrétting,ísskápur og uppþvottavél geta fylgt með við kaupin. Parket er á gólfi.
Stofa/borðstofa, er rúmgóð og gluggar til tveggja átta. Parket er á gólfi. Gengið er um svalahurð út á svalir til vesturs.
Svefnherbergin eru samtals fjögur. þrjú þeirra eru á svefnherbergisgangi og eitt forstofuherbergi. Öll með parketi á gólfi, fataskápur þremur þeirra
Gangur, parket er á gólfi.
Baðherbergi er með hvítri innréttingu og nýlegum sturtuklefa. Físar eru á gólfi og vegjum að mestu.
Þvottahús, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi, útgengi út á svalir til norðurs og þaðan liggur stigi niður að inngönguhurð í sameign, geymslu og bílskúr.
Geymsla/svefnherbergi, parket á gólfi og góðir skápar. Á teikningu er þetta rými skráð sem geymsla en nýtist sem herbergi í dag. 
Í sameign er lítil snyrting og inntaksrými ásamt geymslugangi.
Bílskúr er með steyptu, lökkuðu gólfi og rafdrifinni bílskúrshurð.
Geymsla í séreign er undir steyptum tröppum sem liggja upp í íbúðina að austan.

Annað:
-  Þak yfirfarið 2020, þá var skipt um járn og skorsteinn tekinn af.
-  Hús múrviðgert og málað að utan 2020.
-  Húsið lítur vel út að utan, stórt, malbikað bílaplan fyrir framan eignina.
-  Góð staðsetning, stutt í verslun- og þjónustu á Glerártorgi. 
-  Eignin er í göngufæri við sundlaug Akureyrar og miðbæinn.  
-  Íbúðin er laus við undirritun kaupsamnings. 

Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.

Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi         s: 862-7919    / [email protected]
Begga           s: 845-0671    /[email protected]
Arnar            s: 898-7011    / [email protected]



 

Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. jún. 2007
17.290.000 kr.
23.700.000 kr.
161 m²
147.205 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone