Lýsing
Sumarhúsið stendur á fallegri og skjólsælli eignalóð og þar er líka heitt vatn og hlutdeild í borholu.
Heitur pottur og falleg eignalóð. Stærð hússins er 52.6 fm og stærð lóðar er 2.710 fm.
Eignin telur forstofu, og innaf henni er herbergi, stofu, eldhús, wc, annað herbergi og síðan er svefnloft yfir hluta hússins.
Lóðin er gróin og skjólsæl, þar hefur verið plantað mikið af trjám.
Heitur pottur og útisturta eru á sólpalli sem er meðfram hluta hússins.
Innbú getur fylgt með í kaupum.
Þetta er áhugaverð eign fyrir þá sem vilja eignast vinalegt sumarhús og geta gert það að sínu.
Staðsetningin er góð, en "landsvæðið" sem um ræðir er í landi Syðri-Reykja, sem er staðsett c.a. miðja leiða á milli þéttbýlis,- og þjónustukjarnanna - Reykholts og Laugarvatns.
Sjá hér með því að SMELLA HÉR.
Áætlaður rekstarkostnaður.
Fasteignagjöld - 235.500, ár eða 19.625, mán.
Tryggingar - Bruna,- og húseigandatrygging 77.000,- ár eða 6.416,- mán
Þar af er brunatrygging sem er skyldutrygging c.a. helmingur upphæðar.
Rarik - Flutningur rafmagns - 96.000,- ár eða 8.000,- mán.
Orkusalan - Rafmagnsnotkun 26.700,- ár eða 2.300,- mán
Heitt vatn - Fast gjald 56.000,- ár eða 4.666,- mán
Sumarhúsafélag - (gæti hækkað ) - 60.000,- ár eða 5.000,- mán.
Samtals c.a. 551.200,- ár eða ca. 46.000,- mán.
Ef þið viljið bóka skoðun eða fá nánari upplýsingar:
Sigurður Fannar lögg.fasteignasali í síma 897-5930 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.