Lýsing
Sumarhúsið er í landi Miðfells við Sandskeið í innan við klst frá höfuðuborginni.
Um er að ræða einstaklega notalegan og vel skipulagðan sumarbústað í fallegu náttúruumhverfi þar sem kyrrðin og útsýnið yfir Þingvallavatn njóta sín til fulls.
Svæðið er lokað með hliði (símahlið).
Húsið skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, bjarta stofu og opið eldhús. Frá stofu er útgengt út á stóran pall með heitum potti.
Á lóðinni er einnig geymsluskúr og gott útisvæði.
Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgott anddyri með skáp, svo er gengið inní bjarta og hlýlega stofu með spónaparketi á gólfi.
Stofa / borðstofa með kamínu og spónarparket á gólfi, útgengt út á pall úr stofu.
Eldhúsið er með ljósri innréttingu, eldavél með bakaraofni og fjórum hellum.
Svefnherbergin eru þrjú, Eitt með hjónarúmi og tvö með kojum. Öll með spónaparketi á gólfum.
Baðherbergið er með sturtu dúkur á gólfi. Þvottavél getur fylgt með.
Við húsið er stór pallur, um 50–60 fm að stærð. Geymsla á pallinum.
Fínn staður fyrir rafmagnspott - Potturinn sem er á staðnum gaf nýlega upp öndina og þarf að skipta út heita pottinum.
Með eigninni getur fylgt allt innbú.
Pallurinn var nýlega tekinn í gegn og þakkantur lagaður.
Hér er um að ræða fallegan og vel staðsettan sumarbústað á stórri eignarlóð með einstöku útsýni yfir Þingvallavatn og nálægð við fjölbreytta náttúru og útivist.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - Sími: 566 0000
Rúnar Þór Árnason - lgf., - [email protected]
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.