Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Benedikt Ólafsson
Sveinbjörn Rosén Guðlaugsson
Eggert Maríuson
Tinna Bergmann Halldórsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Suðurhvammur 5

220 Hafnarfjörður

72.800.000 kr.

545.318 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2079873

Fasteignamat

74.300.000 kr.

Brunabótamat

61.530.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1988
svg
133,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:

Í einkasölu bjarta og rúmgóða 133,5 fm 3ja–4ra herbergja endaíbúð með gluggum í þrjár áttir og víðu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið, Esjuna og Snæfellsjökul. Eigninni fylgir 25,9 fm bílskúr. 
Um er að ræða vel skipulagða eign sem stendur hátt og nýtur því góðrar birtu og útsýnis. Möguleiki er á 3. svefnherbergi, en það hefur verið áður. Eignin hefur verið vel umgengin og hefur m.a. fengið nýlegt harðparket og endurnýjun á gluggum að hluta.
Eignin Suðurhvammur 5, 220 Hafnarfjörður, ásamt öllu sem henni fylgir og fylgja ber að engu undanskildu, þ.m.t. tilheyrandi lóðarréttindi. Fastanúmer eignar: 207-9873.

Ásett verð: 72.800.000 kr.

ATH: Eignin getur verið laus fljótlega.


"Smelltu hér til að skoða myndband um eignina"

Sölupunktar eignar:
• Björt endaíbúð
• Gluggar í þrjár áttir
• Sólríkar suðursvalir
• Möguleiki á 3. svefnherbergi
• Bílskúr 25,9 fm
• Barnvænt hverfi

*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*

Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala, í síma 661 7788 eða á netfanginu [email protected].

Eignin skiptist í:
Forstofu, stofu, borðstofu, eldhús með borðkrók, hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi, svalir, sérgeymslu og bílskúr með geymslu inn af.

Nánari lýsing:
Forstofa: Forstofa með harðparketi og góðum fataskápum.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum og útgengi á suðursvalir. Möguleiki er á að útbúa 3. svefnherbergið á ný þar sem borðstofan er í dag, en herbergi var áður á þeim stað.
Eldhús: Bjart og rúmgott eldhús með góðri vinnuaðstöðu, miklu skápaplássi og rúmgóðum borðkrók við stóran glugga. Þaðan er vítt útsýni yfir höfuðborgarsvæðið, Esjuna og Snæfellsjökul, og á fallegum kvöldum er einstakt að horfa á kvöldsólina setjast í vestri.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og góðum skápum.
Svefnherbergi: Gott herbergi með harðparketi og fataskápum.
Baðherbergi: Rúmgott með flísum á gólfi, innréttingu, tengi fyrir þvottavél og baðkari með sturtuaðstöðu. Gluggi er á baðherbergi.
Svalir: Góðar Sólríkar suðursvalir.
Geymsla: Sérgeymsla á jarðhæð, 6,2 fm, með hillum og máluðu gólfi.
Bílskúr: 25,9 fm bílskúr með geymslu inn af og aðstöðu fyrir verkfæri eða létt verk.
Sameign: Gengið er upp tröppur utanhúss að inngangi hússins og þaðan upp um eina og hálfa hæð í stigagangi að íbúðinni.
Aðkoma: Athygli er vakin á því að gengið er upp tröppur utanhúss að inngangi hússins og þaðan ern gengið upp tvær hæðir innan stigagangsins að íbúðinni. Stutt er í helstu þjónustu, verslanir, skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og sundlaug.

Staðsetning: Staðsetning eignarinnar er mjög góð á vinsælum og fjölskylduvænum stað í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Í næsta nágrenni eru skólar, leikskólar, verslanir, íþróttaaðstaða og sundlaug, auk þess sem fallegar göngu- og útivistarleiðir eru skammt undan.
Hér er því um að ræða bjarta og rúmgóða eign á góðum stað þar sem þægindi, þjónusta og útivist fara vel saman.

Framkvæmdir á húsinu á síðustu árum:
2023 – húsið múrviðgert og málað
2022 – gluggar og svalahurð endurnýjuð að hluta
2022 – nýtt mynddyrasímakerfi

 DZIEŃ OTWARTY – CZWARTEK 18:00–18:30
Jasne mieszkanie narożne 133,5 m² z oknami z trzech stron i garażem 25,9 m².
Słoneczny balkon od strony południowej.
Możliwość 3 sypialni.
Przyjazna okolica dla rodzin z dziećmi.
Z kuchni rozciąga się szeroki widok na okolice Reykjavíku, Esję i Snæfellsjökull.

KR. 72,8 mln ISK

Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala, í síma 661 7788 eða á netfanginu [email protected].
Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Benedikt Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
STOFN Fasteignasala ehf.
Lyngási 11, 210 Garðabæ
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ
img

Benedikt Ólafsson

Lyngási 11, 210 Garðabæ
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ

Benedikt Ólafsson

Lyngási 11, 210 Garðabæ