Opið hús: Snorrabraut 62, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 09. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 28. apríl 2026 milli kl. 16:00 og kl. 16:25.
Lýsing
Birt stærð íbúðar er 53,8 fm (þar af geymsla 8,4 fm). Leyfi fyrir gæludýrahaldi er í húsinu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð, með aðgengi frá lóð.
Lýsing eignar:
Gengið er inn í forstofu sem tengist alrými íbúðarinnar. Stofa og eldhús mynda bjart og opið rými með stórum gluggum á tveimur hliðum sem hleypa mikilli dagsbirtu inn. Úr stofu er gengið út á svalir með góðu útisvæði. Eldhús er í nútímalegum stíl með góðu skápaplássi og tengist stofu á þægilegan hátt. Baðherbergi er rúmgott, flísalagt veggjum og gólfi, flísalagður sturtuklefi, snyrtileg innrétting og tengi fyrir bæði þurrkara og þvottavél. Svefnherbergið er rúmgott og með fataskáp.
Staðsetning:
Snorrabraut er miðsvæðis í Reykjavík með stutt í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla, leikskóla og almenningssamgöngur. Frábær staðsetning fyrir þá sem vilja búa miðsvæðis með greiðu aðgengi að miðborg og stofnæðum.
Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected] löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.