Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Asparfell 6

111 Reykjavík

69.900.000 kr.

586.902 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2051849

Fasteignamat

65.800.000 kr.

Brunabótamat

54.520.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1973
svg
119,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Falleg, björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð auk bílskúrs í góðu lyftuhúsi á 4. hæð við Asparfell 6, Reykjavík. Bílskúr næst inngangi hússins. 
Húsið hefur fengið gott viðhald gegnum árin. Húsið er klætt með viðhaldslítilli klæðningu. Eignin er laus við kaupsamning. 

Samkv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð alls 119,1 fm. og þar af er bílskúr 25,5 fm. 

Eignin skiptist í hol, eldhús, stofu, svalir, 2 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og bílskúr.

Nánar um eignina:
Forstofa er með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Eldhús er með fallegri innréttingu, helluborð, vifta, tvennir bakarofnar í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi og rúmgóður borðkrókur.
Stofa / borðstofa er rúmgóð með parketi á gólfi og útgent út á suðursvalir.
Hjónaherbergi með fataherbergi inn af herberginu og parket á gólfi.  
Svefnherbergi er með parketi á gólfi. 
Baðherbergi með baðkari, vaskur, salerni, tengi fyrir þvottavél, flísalagði veggir og dúkur á gólfi. 
Geymsla íbúðar er á jarðhæð hússins.
Bílskúr rúmgóður og er alveg við inngang hússins. Bílskúrshurð með hurð í, rafmagnshurðaopnari, lagt fyrir rafmagnshleðslu, heitt og kalt vatn, ofn og snyrtileg innrétting. 

Á hæðinni er sér þvottahús fyrir íbúðir á þessarri hæð ásamt sameiginlegri geymslu.
Sameiginleg hjóla + vagnageymsla á jarðhæð.

Sameign er snyrtileg. Teppalagður stigagangur og flísar á jarðhæð.
Lóðin er falleg og gróin og með leiktækjum fyrir börn. Næg bílastæði á lóð.

Húsinu hefur verið vel viðhaldið í gegnum árin meðal annars var farið í stórar framkvæmdir á gluggum, múr og þaki árið 2022 til 2023. . Einnig var nýlega komið fyrir djúpgámum á bílastæði. Öflugt húsfélag er í eigninni og húsvörður í föstu starfi á dagvinnutíma. Næg bílastæði eru við húsið. 
 
Stutt er í alla almenna þjónustu hvort sem er í göngufæri eða með strætisvagnasamgöngum, leik- og grunnskólar í göngufæri ásamt líkamsrækt, sundlaug, bókasafni og íþróttaiðkun. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. mar. 2022
41.650.000 kr.
54.500.000 kr.
119.1 m²
457.599 kr.
20. júl. 2010
18.100.000 kr.
18.400.000 kr.
119.1 m²
154.492 kr.
19. mar. 2009
20.110.000 kr.
21.800.000 kr.
119.1 m²
183.039 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík