Lýsing
Miklaborg kynnir: Bjarta og fallega tveggja herbergja íbúð á annari hæð í góðu lyftuhúsi. Fallegt útsýni frá íbúð. Rólegt verfi með fallegum gönguleiðum þar sem stutt er í skóla, leikskóla, hið vinsæla Sky lagoon og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða [email protected]
Nánari lýsing íbúðar.
Anddyri: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, eldhúsinnrétting, innfelld uppþvottavél, innfelldur ísskápur.
Stofa: Parket á gólfi. Útgengt út á svalir.
Herbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni.
Þvottahús: Inn af baðherbergi, flísar á gólfi, skolvaskur.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í opnu bílastæðahúsi.
Garður: Sameiginlegur skjólsæll afgirtur garður.
Hafnarbraut 11 staðsett á frábærum stað þar sem sameinast rólegt íbúðarumhverfi, sjávarnánd og stutt í alla helstu þjónustu. Í næsta nágrenni eru fallegar gönguleiðir meðfram strandlengjunni, verslun, skólar, leikskólar, veitingastaðir og góðar samgöngur til Reykjavíkur og annarra hluta höfuðborgarsvæðisins. Kársnesið hefur á undanförnum árum tekið miklum breytingum með spennandi uppbyggingu og er orðið eitt mest aðlaðandi búsetusvæði landsins.