Opið hús: Barðastaðir 15, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 202. Eignin verður sýnd laugardaginn 16. maí 2026 milli kl. 15:00 og kl. 16:00.
Lýsing
Björt og vel skipulögð 120,9 fm. þriggja herbergja íbúð á annarri hæð, þar af er 7,9 fm. geymsla og 27,6 fm. bílskúr í snyrtilegu húsi við Barðastaði í Grafarvogi.
Íbúðin er merkt 02 0202.
ATH. EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING
Eignin samanstendur af eldhúsi, stofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi með þvottahúsi inn af, geymslu og bílskúr.
Nánari lýsing:
Sérinngangur í flísalagða forstofu með góðum fataskáp. Mynddyrasími.
Úr forstofu er komið í rúmgott parketlagt hol.
Stór parketlögð stofa með útgengi á góðar suðvestur svalir.
Borðstofan tengir stofu og eldhús.
Eldhús er með L-laga innréttingu. Flísar á milli efri og neðri skápa. Gufugleypir og keramik helluborð. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með.
Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf með innréttingu og baðkari.
Þvottahús með innréttingu er inn af baðherbergi. Þvottavél getur fylgt með.
Tvö parketlögð svefnherbergi með skápum. Útgengt á suðvestur svalir úr hjónaherbergi.
7,9 fm. sérgeymsla í kjallara með hillum. Hjóla og vagnageymsla í sameign.
27,6 fm. snyrtilegur bílskúr. Nýleg bílskúrshurð, bílskúrshurðaopnari, vaskur, milliloft og opnanlegur gluggi.
Eigninni fylgir hlutdeild í góðri og snyrtilegri sameign. Teppalagt stigahús.
Nýlegt beikiparket frá Harðviðarval og nýlegir ofnar eru í íbúðinni.
Barðastaðir 13-15 er þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús með valmaþaki og skiptist í tvö stigahús.
Mjög góð eign í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, ýmsa þjónustu, golf á Korpunni með náttúruna allt um kring.
Nánari upplýsingar veita:
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / [email protected]
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / [email protected]
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.