Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jósep Grímsson
Rúnar Örn Rafnsson
Vista
fjölbýlishús

Breiðavík 16

112 Reykjavík

71.700.000 kr.

794.900 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2233710

Fasteignamat

66.900.000 kr.

Brunabótamat

42.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1998
svg
90,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Rúnar Örn Rafnsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Breiðuvík 16
Rúmgóð og björt 3ja herbergja íbúð á frábærum stað í Grarfvogi.

 
Björt og vel skipulögð íbúð á annari hæð með góðum lokuðum svölum.
Birt stærð íbúðar skv. fasteignaskrá er 90,2 m², þar af er rúmgóð geymsla í sameign skráð 8 m².

Lýsing íbúðar:
Gengið er inn í íbúðina um sérinngang úr opnu stigahúsi.
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Stofa er í rúmgóðu, björtu og fallegu parketlögðu rými, góðir gluggar og útgengt út á góðar svalir.
Svalirnar hafa verið lokaðar af með góðri svalalokun, flísar á svalagólfi sem er upphitað.
Eldhús tengist stofu og er þannig hluti af alrými íbúðarinnar. Innrétting er viðarlit.
Svefnherbergi I rúmgott hjónaherbergi er með gólfdúk og góðum skápum.
Svefnherbergi II gott barna eða gestaherbergi, með skápum og teppi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með vaskinnréttingu, sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Þvottahús er innan íbúðar, ágætt vinnurými og smá geymslurými einnig. Flísar á gólfi.
Svalir eru flísalagðar og lokaðar af með svalalokun og nýtast því vel hvernig sem viðrar.
Geymsla er stór og góð (8 m²) í snyrtilegri sameign í kjallara hússins.

Sameign
Í sameign á jarðhæð er sameiginleg hjóla og vagnageymsla og í kjallara eru sérgeymslur og sameiginleg dekkjageymsla.
Snyrtilegur afgirtur garður er í kringum húsið og næg bílastæði eru til staðar fyrir þær 16 íbúðir sem í húsinu eru.

Hér er um að ræða góða eign á frábærum stað í Grafarvogi. Stutt er í alla helstu grunnþjónustu, s.s. skóla og leikskóla.
Í næsta nágrenni er svo verslunarkjarninn Spöngin, og einnig Egilshöll með allri þeirri þjónustu sem þar er boðið uppá.


Nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600
[email protected]

Fasteignasalan Grafarvogi

Hverafold 1-3, 2.hæð, 112 Reykjavík
phone

Fasteignasalan Grafarvogi

Hverafold 1-3, 2.hæð, 112 Reykjavík
phone