Opið hús: þriðjudaginn 21. júlí kl. 17:15 til 17:45. Vesturberg 120, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 401.
Lýsing
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar. Þá fylgir eigninni jafnframt sérgeymsla í sameign. Tvennar svalir eru á íbúðinni og nýtur hún því góðrar birtu og bæði morgun- og kvöldsólar. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 91,20 fermetrar, þar af er geymslan 4,6 fermetrar.
Nánari lýsing:
Anddyri: Parket á gólfi og fataskápur.
Eldhús: Snyrtileg viðarinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Flísar á gólfi og borðkrókur. Þvottahús er inn af eldhúsi.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð í samliggjandi rými. Parket á gólfi. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar svalir með fallegu útsýni.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með parketi á gólfi, gott fataherbergi og útgengi á svalir.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Walk-in sturta og snyrtileg baðinnrétting. Baðherbergið var uppgert fyrir uþb. 8 mánuðum.
Þvottahús: Innan íbúðar, gott pláss fyrir innréttingu, borð eða skápa.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign, 4,6 fermetrar.
Sameign: Sameiginlegt þurrkherbergi ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Framkvæmdir á húsinu undanfarin ár:
Árið 2010 var skipt um glugga í húsinu, að undanskildum gluggum sem liggja að svölum íbúða.
Á árunum 2020–2021 var framhlið hússins háþrýstiþvegin, múr yfirfarinn og lagfærður og húsið málað, þar með talið svalir og svalahandrið.
Þá var bakhlið hússins einnig háþrýstiþvegin, múr og svalir yfirfarin og lagfærð og handrið máluð.
Árið 2020 var þak hússins yfirfarið og málað.
Annað:
Um er að ræða vel skipulagða og fjölskylduvæna eign á góðum stað í Breiðholti. Stutt er í tvo grunnskóla, leikskóla, Fjölbrautaskólann í Breiðholti, Breiðholtslaug, líkamsrækt, verslanir, heilsugæslu, bókasafn og alla helstu þjónustu. Þá eru fallegar göngu- og hjólaleiðir og útivistarsvæði Elliðaárdalsins í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
[email protected] / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli – Verðmat fasteigna – Lúxus fasteignir – Greiðslumat.is – Hvað getur þú keypt
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður