Opið hús: Brávallagata 20, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 3. september 2026 milli kl. 17:45 og kl. 18:15.
Lýsing
Staðsetning eignarinnar er mjög góð á rólegum stað í "gamla vesturbænum" þaðan sem stutt er í skóla á öllum stigum, öll helsta verslun og þjónusta í göngufæri ásamt fjölbreyttri flóru af kaffi- og veitingastöðum svo eitthvað sé nefnt.
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða [email protected]
Eignin Brávallagata 20 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-4261, birt stærð 84.0 fm, þar af er sérmerkt geymsla í kjallara merkt 0003 skráð 9.8fm.
Nánari lýsing:
Stigagangur: Ein íbúð á hverjum palli. Fatahengi með hillu og skóskáp. Íbúð nýtir stigagang á sinni hæð sem forstofu.
Hol: Komið inn í hol úr stigagangi. Úr holi er gengið inn í stofu, eldhús og svefnherbergi.
Eldhús: Ljós innrétting með eldavél og háf fyrir ofan ásamt eldhúsvaski. Aðstaða fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Baðherbergi: Bað með sturtu, kláosett, upphengdur vaskur með spegli fyrir ofan vask ásamt upphengdum skáp. Flísar á gólfi og á hluta veggja.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott svefnherbergi með fataskápum.
Stofa I: Rúmgóð og falleg stofa. Samliggjandi og hálf opin við borðstofu (borðstofa nýtt í dag sem svefnherbergi).
Stofa II / Svefnherbergi II: Samliggjandi og hálf opin við stofu. Í dag nýtt sem svefnherbergi. Útgengt út á rúmgóðar suðvestur svalir.
Svalir: Rúmgóðar suðvestur svalir.
Geymsla: Sér geymsla í kjallara, 9,8fm.
Parket er á gólfum í íbúðinni nema á baðherbergi sem er flísalagt. Gengið er inn um sameiginlegan inngang þriggja íbúða, ein íbúð á hverri hæð. Skóskápur og hengi á hæð tilheyrir íbúð. Komið er inn í hol og þaðan er gengið inn í önnur rými íbúðarinnar.
Falleg 3ja herbergja íbúð í afar vinsælu, fallegu og grónu hverfi í gamla Vesturbænum. Öll helsta verslun, nærþjónusta sem er í boði í Vesturbæ Reykjavíkur s.s. Vesturbæjarsundlaug, Melabúðin og Kaffi Vest í göngufjarlægð ásamt miðbæ Reykjavíkur með allt sem hann hefur upp á að bjóða. Skólar á öllum stigum í göngufjarlægð ásamt íþróttasvæði Reykjavíkurstórveldisins KR í Frostaskjóli.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur [email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.