Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Hilmar Arnarson
Vista
raðhús

Hraunbær 7

110 Reykjavík

135.900.000 kr.

822.142 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2044397

Fasteignamat

110.150.000 kr.

Brunabótamat

91.310.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1967
svg
165,3 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Hjólastólaaðgengi
Opið hús: 8. október 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Hraunbær 7, 110 Reykjavík. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 8. október 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali, kynna rúmgott og vel skipulagt raðhús við Hraunbæ 7 í Reykjavík. Eignin er samtals 165,3 fm, þar af er 22 fm bílskúr. Húsið býður upp á fjögur svefnherbergi, björt og rúmgóð alrými og einstaklega skemmtilega tengingu við skjólgóðan og sólríkan pall með heitum potti.
*** Hér er hægt að kíkja í 3D-heimsókn ***
Upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 820-0490 eða á netfanginu [email protected]

Frekari upplýsingar um eignina:
Komið er inn í forstofu, sem leiðir inn í bjart og opið alrými hússins.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með stórum gluggum sem hleypa góðri dagsbirtu inn. Rýmin tengjast vel saman og mynda fallega og opna heild. Úr stofunni er gott útsýni yfir pallinn og garðinn og skemmtileg tenging er á milli inni- og útirýmis.
Eldhúsið er fallegt bjart, vel skipulagt með góðu skápa og vinnuplássi. Ljós innrétting í bland við dekkri efri skápa og granít borðplötur gefa eldhúsinu fallegt yfirbragð.
Inn af eldhúsi er rúmgott þvottahús og geymsla með útgengi út að framan.
Í eigninni eru fjögur svefnherbergi, sem gerir eignina sérstaklega hentuga fyrir fjölskyldufólk. Léttur veggur er á milli tveggja herbergjanna og því býður skipulagið upp á ákveðinn sveigjanleika eftir þörfum.
Baðherbergi er með upphengdu salerni og sturtu auk innréttingar. Þetta rými var tekið í gegn fyrir um 10 árum. Að auki er gestasalerni inn af forstofu.
Geymsla fylgir eigninni, þar er lagnagrindin sem hefur verið endurnýjuð að hluta. Þar er einnig stýring á heita pottinum.
Útiaðstaðan: Við húsið er stór, skjólgóður og sólríkur, lokaður pallur með heitum potti. Hér er einstaklega góð aðstaða til útiveru. Fallegur gróður umlykur svæðið og gefur því hlýlegt yfirbragð.
Eigninni fylgir 22 fm bílskúr með nýlegri bílskúrshurð, sem nýtist vel bæði fyrir bifreið og sem aukið geymslu- eða vinnurými.
***Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni: Fyrir um 10 árum voru meðal annars gólfefni endurnýjuð(harðparket á öllu nema votrýmum), ný eldhúsinnrétting sett upp og baðherbergi tekið í gegn. Rafmagn hefur verið endurnýjað og neysluvatnslagnir endurnýjaðar. Í kringum 2016 voru frárennslislagnir myndaðar og voru þá í lagi.***
Viðhald: Á næstu árum má gera ráð fyrir að þörf sé á að mála þak, ásamt endurnýjun á þakkanti.
Hraunbær er rótgróið og fjölskylduvænt hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, íþróttastarf og aðra helstu þjónustu. Þá eru fjölbreytt útivistarsvæði og góðar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni.

Allar frekari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 820-0490 eða á netfanginu [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. sep. 2016
40.550.000 kr.
47.500.000 kr.
165.3 m²
287.356 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone