Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Víðir Arnar Kristjánsson
Vista
fjölbýlishús

Garðsendi 12

108 Reykjavík

69.900.000 kr.

716.923 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2035605

Fasteignamat

74.500.000 kr.

Brunabótamat

47.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1956
svg
97,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Valhöll og Víðir Arnar kynna skemmtilega og bjarta efri sérhæð með sérinngangi í litlu fjölbýli á vinsælum og veðursælum stað við Garðsenda 12 í Reykjavík.
Um er að ræða íbúð sem er skráð alls 97,50 m2 að stærð ásamt geymslu í kjallara. Íbúðin telur þrjú svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús og baðherbergi, en sameiginlegt þvottahús er í kjallara og sér geymsla. Á lóðinni er stór sameiginleg timburverönd og einnig geymsla sem tilheyrir eigninni sem er ekki talin í heildarfermetra. Húsið hefur fengið ágætt viðhald að utan nýlega og lóð er snyrtileg.

VEL SKIPULÖGÐ ÍBÚÐ Í FALLEGU LITLU FJÖLBÝLI Í EFTIRSÓTTU OG RÓLEGU HVERFI NEÐAN VIÐ SOGAVEG, ÞAR SEM STUTT ER Í ALLA HELSTU VERSLUN OG ÞJÓNUSTU ÁSAMT LEIK-, GRUNN OG FRAMHALDSSKÓLA. 

Nánari skipting og lýsing eignahluta:
Forstofa: Með flísum á gólfi og skáp og gengið er upp tröppur á næstu hæð í íbúðina.
Hol: Við inngang er hol eða breiður gangur með parketi og skáp sem tengir saman vistaverur íbúðarinnar.
Eldhús: Með upprunalegri innréttingu og nýlegu korkparketi á gólfi.
Stofa: Afar björt með parketi á gólfi og gluggum í þrjár áttir.
Hjónaherbergi: Með parketi á gólfi og vönduðum fataskáp.
Herbergi: Með parketi á gólfi og stórum gluggum í þrjár áttir. (yfirbyggðar svalir)
Barnaherbergi: Með parketi á gólfi og gluggum í tvær áttir.
Baðherbergi: Með sturtu, salerni, vaski, skáp og spegli. Tengi fyrir þvottavél. Flísalagt hátt og lágt.
Geymsla: Í kjallara er köld geymsla sem tilheyrir íbúðinni (4,9 fm)
Verönd: Sameiginleg timburverönd fyrir framan hús.
Geymsla á lóð: Á lóð er búið að koma fyrir klæddri 12 feta gámaeiningu og á íbúðin helming hennar sem nýtt er sem geymsla (rafmagnsofn er í rými). Stærð geymslu er c.a. 7,5 m2 og er ekki talið í heildarfermetra eignar.

Húsið var sprunguviðgert þar sem talin var þörf á suður-, norður- og austurhliðum árið 2021-2022.
Þriðja herbergið var útbúið með því að yfirbyggja svalir á framanverðu húsinu og því eru ekki svalir í íbúðinni.

Ítarlegri upplýsingar veitir:
Víðir Arnar Kristjánsson, löggiltur fasteignasali - S 854 2226 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

img
Víðir Arnar Kristjánsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Víðir Arnar Kristjánsson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Víðir Arnar Kristjánsson

Síðumúla 27, 108 Reykjavík