Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1947
97,8 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Opið hús: 9. nóvember 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Hagamelur 16, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 9. nóvember 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Borg fasteignasala kynnir til sölu fallega, bjarta og mikið endurnýjaða 4ra herbergja íbúð á 2. hæð við Hagamel 16 í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðin hefur verið endurskipulögð og endurnýjuð að verulegu leyti á vandaðan og smekklegan hátt. Meðal annars var nýtt eldhús útbúið árið 2020, baðherbergi stækkað og endurnýjað, raflagnir og neysluvatnslagnir endurnýjaðar, skipt um ofna og gólfefni. Þá var ráðist í umfangsmiklar endurbætur á ytra byrði hússins árið 2024. Skv, fasteignayfirliti HMS er íbúðin skráð alls 97,8 fm, þar af 5,6 fm geymsla í sameign. Á baklóð hússins eru hjólaskýli og sorpskýli. Þar er jafnframt inngangur í sameign þar sem íbúðinni fylgir geymsluskápur.
Nánari lýsing
Forstofa/hol: Rúmgott og bjart hol með eikarparketi á gólfi. Þaðan er gengið inn í önnur rými íbúðarinnar.
Stofa: Falleg og björt stofa með stórum gluggum. Eikarparket á gólfi. Stofan er rúmgóð og opnast að hluta inn í eldhús og borðstofu.
Eldhús og borðstofa: Sérlega fallegt og rúmgott eldhús sem var útbúið árið 2020 í rými sem áður var önnur af tveimur stofum íbúðarinnar. Dökk IKEA-innrétting með góðu skápaplássi og stórri eldhúseyju með viðarborðplötu. Spanhelluborð, gufugleypir, bakaraofn og innbyggður ísskápur og frystir. Við eldhúsið er björt borðstofa með stórum gluggum á tvo vegu. Opið er á milli eldhúss og stofu sem skapar skemmtilegt og rúmgott alrými.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru björt og snyrtileg með eikarparketi á gólfum. Í hjónaherbergi er góð skápaaðstaða og stór gluggi. Önnur herbergi nýtast vel sem barnaherbergi.
Baðherbergi: Fallegt og rúmgott baðherbergi sem var stækkað og endurnýjað árið 2020. Flísar á gólfi og veggjum, gólfhiti og handklæðaofn. Upphengt salerni, viðarlituð baðinnrétting með vaski og rúmgóð sturta með glerþili og innfelldum blöndunartækjum. Aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Endurbætur:
Árið 2020 var íbúðin endurnýjuð að verulegu leyti:
Eldra eldhús fjarlægt og rýminu breytt í svefnherbergi. Nýtt eldhús útbúið í annarri stofu íbúðarinnar.
Baðherbergi stækkað og endurnýjað, meðal annars með nýjum innréttingum, tækjum, flísum og gólfhita.
Neysluvatnslagnir fyrir heitt og kalt vatn og frárennslislagnir innan íbúðar endurnýjaðar.
Skipt um alla ofna í íbúðinni.
Allir gólffletir flotaðir, halli í gólfum leiðréttur og lagt þriggja stafa eikarparket með hljóðdúk undir.
Innihurðir og dyrakarmar endurnýjaðir. Upprunalegar millihurðir gerðar upp.
Raflagnir innan íbúðar endurnýjaðar, ný raftaug lögð að íbúð og rafmagnstafla endurnýjuð. Skipt um rofa og tengla.
Nýr dyrasími settur upp.
Árið 2024 var ráðist í umfangsmiklar endurbætur á húsinu að utan. Meðal annars voru framkvæmdar steypuviðgerðir, þakkantur endursteyptur, svalir endurbyggðar, húsið endursteinað og þakrennur endurnýjaðar. Jafnframt var settur sérsmíðaður gluggi í eldhús, skipt um glugga og svalahurð í stofu og endurnýjað gler í gluggum tveggja svefnherbergja.
Staðsetning
Hagamelur 16 er á góðum stað í grónu og rótgrónu íbúðahverfi í Vesturbæ Reykjavíkur. Stutt er í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu, sundlaug Vesturbæjar, háskólasvæðið og miðborg Reykjavíkur. Þá eru fjölbreyttir möguleikar til útivistar og gönguferða í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar veita:
Úlfar Þór Davíðsson löggiltur fasteignasali í síma: 788-9030/ [email protected]
Börkur Hrafnsson löggiltur fasteignasali í síma 892-4944, [email protected]

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. jan. 2020
49.100.000 kr.
53.900.000 kr.
97.8 m²
551.125 kr.
16. nóv. 2012
24.850.000 kr.
33.200.000 kr.
97.8 m²
339.468 kr.
20. sep. 2011
21.550.000 kr.
29.600.000 kr.
97.8 m²
302.658 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026