Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1955
119 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR Í EINKASÖLU: Fallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð með sérinngangi í Reynimel 57, 107 Reykjavík. Eignin er samtals 119 fm og telur tvö svefnherbergi, stofu og eldhús í opnu rými, stórt hol sem tengir saman öll rými eignarinnar, baðherbergi, sér geymslu og þvottraými í sameign. Virkilega fallegt og mikið endurbætt hús teiknað af Halldóri H. Jónssyni arkítekt.
Eignin er staðsett á vinsælum stað í vesturbænum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Háskóli Íslands, íþróttasvæði KR og sundlaug vesturbæjar er jafnframt í göngufæri. Vegleg eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir Sunna Sigurjónsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 845-0517, tölvupóstur [email protected].
Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa: Sérinngangur. Fallegar flísar á gólfi. Hægt er að ganga inn í annað svefnherbergið úr forstofunni.
Hol: Stórt hol með fallegum flísum á gólfi sem tengir saman öll rými eignarinnar. Falleg rósetta í lofti.
Herbergi I: Rúmgott herbergi með ljósu viðarharðparketi á gólfi og hvítum fataskáp. Falleg rósetta í lofti. Herbergið var áður eldhús og hefur því upprunalegu skipulagi samkvæmt teikningum verið breytt.
Svefnherbergi II: Rúmgott með góðum skápum. Falleg rósetta í lofti. Viðarharðparketi á gólfi.
Stofa, borðstofa og eldhús: Samtengt og bjart rými. Falleg grábrún eldhúsinnrétting, eldhúseyja, bakarofn í vinnuhæð, dökk grænar flísar á hluta af vegg fyrir ofan eldhúsinnréttingu og svartur háfur. Innbygður ísskápur og uppþvottavél fylgir með eigninni. Rennihuðar skilja að stofu og eldhús. Nýtt gler verður sett í hurðar fyrir afhendingu eignarinnar. Falleg rósetta í lofti stofunnar. Viðarharðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja, flísalagður sturtuklefi með glerhliðum, hvít innrétting undir vaski og gluggi með opnanlegu fagi.
Geymsla: 3 fm inni á sameignargangi. Geymslan er séreign íbúðar.
Sameign: Sérinngangur er inn í sameign á jarðhæð við hlið inngang íbúðar. Það er innangent á milli hæða um steyptan stiga af sameignargangi. Flísar á gólfi og teppi á stiga.
Þvottahús: Rúmgott og innangengt úr sameign en það er einnig innangengt inn í sameign úr íbúðinni. Efri pallur þvottahúss er flísalagður, neðri pallur er steyptur og málaður. Þvottahúsið er í sameign með íbúð 0101.
Endurbætur sem hafa átt sér stað innan íbúðar að sögn seljanda:
- Nýtt viðarharðparket í stofu, borðstofu, eldhúsi, svefnherbergjum
- Eldhús var fært úr rými, sem er í dag herbergi I og yfir í núverandi rými.
- Ný eldhúsinnrétting, borðplata og flísar á vegg.
- Ný tæki í eldhús eins og helluborð, bakaraofn, ísskápur, uppþvottavél, vaskur og háfur.
- Hurðar og hurðakarmar sprautulakkað hvítt.
- Nýjir gluggar í öllum rýmum íbúðar nema herbergi I (sem áður var eldhús).
- Öll rými innan íbúðar máluð 2025 nema baðherbergi.
Endurbætur sem hafa átt sér stað á húsinu síðustu ár samkvæmt seljanda og fyrri sölugögnum.
- Húsið var múrviðgert og málað að utanverðu sumarið 2023
- Klóaklagnir undir húsi voru endurnýjaðar 2020/2021
- Drenað við húsið norðanmegin árið 2020/2021
- Þakjárn hússins var yfirfarið og klæðning undir risgluggum endurnýjuð eftir þörfum árið 2023.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. apr. 2025
83.850.000 kr.
79.000.000 kr.
10001 m²
7.899 kr.
31. júl. 2007
19.610.000 kr.
12.500.000 kr.
105.5 m²
118.483 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026