Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
sumarhús

Grenilundur 14

806 Selfoss

38.000.000 kr.

746.562 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2209123

Fasteignamat

29.100.000 kr.

Brunabótamat

22.360.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1965
svg
50,9 m²
svg
1 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Miklaborg kynnir: Virkilega fallegan og mjög mikið endurnýjaðan sumarbústað á eignalóð sem er samkvæmt þjóðskrá 3125 fm í landi Miðfells í Bláskógabyggð við Þingvallavatn. Samkvæmt skráningu Þjóðskrár er birt flatarmál hússins 41,3 fm ásamt 9,6 fm geymsluskúr, samtals 50,9 fm. Húsið er A hús byggt 1965. Möguleiki er á að stækka aðalhúsið upp í 100 fm og byggja viðbótar sumarhús/gestahús allt að 30 fm. Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið) og opnanlegt með fjarstýringu.

Stutt frá ýmis konar þjónustu t.a.m. golfvelli í Grímsnesi, veiði á Þingvallavatni, Laugarvatn, gullna hringinn og þá þjónustu sem þar er í boði. Nánari upplýsingar veita: Bára Gunnlaugsdóttir, lögg. fasteignasali í síma 8998809 eða [email protected]


Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með fatahengi, flísar á gólfi og rafmagnshiti í gólfi. Inn af forstofu er glæsilegt nýuppgert baðherbergi, sturta með glerþili, flísar á gólfi og á hluta af veggjum, rafmagnshiti í gólfi. Eldhús er með glænýrri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél, spanhelluborði og keramikvask. Borðplata er úr gegnheilum við . Stofa og borðstofa með nýju furu parketi og útgangi út á timburpall. Kamína í stofu. Svefnloft er yfir bústaðnum að hluta, með glugga, endurbættur stigi er upp í svefnloft, nýtt furu parket á gólfum. Nýr pallur er fyrir fram hús og aftan. Aðalpallur snýr í suður. Hér er um að ræða yndislegan sælureit sem hægt er að njóta allt árið um kring. Innbú og tæki fylgja með kaupum.


Núverandi eigendur keyptu eignina 2023, frá þeim tíma hefur bústaðurinn verið endurnýjaður að mestu leyti. Þær framkvæmdir sem hefur verið ráðist í að sögn eiganda eru:

AÐ UTAN:
- þak meðhöndlað gegn ryði (grunnmálað) og málað
- öll lagnakerfi (vatnslagnir) endurnýjuð
- nýtt veggvirki á suðurhlið með nýjum tvöföldum gluggum og svalahurðum.
- nýtt gólfvirki, styrkt með auka gólfbitum og einangrað.
- baðherbergi endurnýjað í heild, stækkað rými (veggir og gólf endurbyggð), einangrað (+ rakavörn/dúk)
- ný viðarklæðning á öllu húsinu (viðbætt útilýsing)
- nýir og stækkaðir pallar fyrir framan og aftan hús

AÐ INNAN:
- þakeinangrun (5 cm frauðplast) bætt við ásamt rakavörn
- allt raflagnakerfi endurnýjað
- veggir endurbættir og endurbyggðir (slípaðir, málaðir, handslípaðir og lakkaðir)
- nýtt viðargólf (fura) með OSB-plötum undir
- uppsettur hitakútur (160 l) og hitakapall
- rafmagnsgólfhiti á baðherbergi og í inngangi
- nýr hreinlætisbúnaður á baðherbergi (nú með hitara og opinni sturtu), nýar flísar
- uppsett varmadæla (loft-í-loft) með Wi-Fi tengingu (Mitsubishi MSZ-LN25)
- glænýtt eldhús – þ.m.t. uppþvottavél, spanhelluborð, ofn, ísskápur, borðplata úr gegnheilum við, keramikvaskur og öll smærri tæki
- loftræstiviftur settar upp á baðherbergi og í eldhúsi
- stigi endurbættur og styrktur (festur við vegg)
- reykháfur styrktur og útblástursrör fyrir arin fært til (lengt)
Fyrri eigendur settu upp rotþró og nýjar vatnslagnir inn í húsið árið 2023.
Þakið var endurnýjað fyrir 12–13 árum.

Nánari upplýsingar veita: Bára Gunnlaugsdóttir, lögg. fasteignasali í síma 8998809 eða [email protected]


Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. ágú. 2023
19.150.000 kr.
20.500.000 kr.
50.9 m²
402.750 kr.
6. okt. 2022
14.850.000 kr.
20.100.000 kr.
50.9 m²
394.892 kr.
22. júl. 2021
14.500.000 kr.
12.500.000 kr.
10101 m²
1.238 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík