Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
raðhús

Furulundur 2F

600 Akureyri

82.900.000 kr.

679.508 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2146307

Fasteignamat

73.050.000 kr.

Brunabótamat

67.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1974
svg
122 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - [email protected]

Furulundur 2f - Vel skipulögð og mikið uppgerð 5 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum á vinsælum stað á Brekkunni - stærð 122,0 m²


Farið hefur verið í miklar framkvæmdir að innan á síðustu árum. Eldhúsið var tekið í gegn árið 2021, 2024 var fræst fyrir gólfhita og sett upp gólfhita kerfi, öll gólfefni endurnýjuð og baðherbergið gert upp. 2025 var snyrting neðri hæðar og þvottahús tekið í gegn. 
Stendur til að klára að teppaleggja stigann, klára að græja úti aðstöðu og verður það gert fyrir afhendingu eignar.


Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þvottahús, snyrtingu og geymslu, á neðri hæð. Á efri hæð eru hol, fjögur svefnherbergi, þar af hjónaherbergi með fataherbergi, og baðherbergi.

Nánari lýsing:
Forstofan er með flísum á gólfi og opnu fatahengi. Úr forstofu er gengið inn í þvottahúsið.
Eldhúsið var endurnýjað árið 2021 og er með hvítri L-laga innréttingu með grárri bekkplötu, efri skápum og opnanlegum glugga. Innfelld uppþvottavél og ísskápur með frysti fylgja með við sölu eignarinnar.
Stofan er rúmgóð með harðparketi á gólfi og þaðan er gengið út á hellulagða suðurverönd með timburskjólveggjum.
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú barnaherbergi og hjónaherbergi. Öll herbergin eru með Nýlegum gólfefnum. Fataskápar eru í tveimur barnaherbergjum en hjónaherbergið er með fataherbergi og útgengi út á steyptar suðursvalir.
Baðherbergið var endurnýjað 2014 er með flísum á gólfi og fíbó plötum á veggjum, viðarlitaðri innréttingu með góðu skápaplássi og handlaug, veggengdu wc, sturtu með glervæng handklæðaofni og opnanlegum glugga. 
Snyrting neðri hæðar er með er með flísum á gólfi, salerni og lítilli hvítri innréttingu með handlaug.
Holið á efri hæð er með nýlegu gólfefni og þar er búið að útbúa "kosy horn".
Þvottahúsið er við hlið forstofu flísum á gólfi og milli skápa, góðu skápa plássi og stæði fyrir þvottavél, þurrkara og frystiskáp.
Geymslan er undir stiganum og þar hefur verið sett fölsk hilla sem einnig er hurð til að komast í geymslurýmið.

Annað:
- Góð staðsetning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla sem og KA svæðið
- Eign sem hefur fengið mikið viðhald að innan
- Hellulögð verönd fyrir framan eignina með hitalögnum sem kyntar eru með affalli frá íbúðarhúsinu
- Plejd stýri kerfi er í svefnherbergi og baðherbergi, möguleiki er að stækka það í fleiri rými eignarinnar

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. maí. 2024
61.250.000 kr.
60.000.000 kr.
60101 m²
998 kr.
16. maí. 2007
16.985.000 kr.
19.000.000 kr.
122 m²
155.738 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone