Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Vindakór 14

203 Kópavogur

94.500.000 kr.

730.858 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2286428

Fasteignamat

87.100.000 kr.

Brunabótamat

63.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
129,3 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 16. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús í Vindakór 14, 03 06 mánudaginn 16. febrúar kl. 17:00-17:30. Verið velkomin!

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir : Vel skipulagða og bjarta 4ra herbergja íbúð á 3.hæð með glugga á þrjá vegu. Fallegt útsýni.  Þrjú rúmgóð svefnherbergi. Þvottahús og geymsla eru innan íbúðar.  Svalir frá stofu til suðurs. Allar upplýsingar veitir Dórothea fasteignasali, [email protected] og í s.898-3326.

Samkvæmt HMS er eignin samtals skráð 129,3 fm með sérgeymslu innan íbúðar. Gólfefni er harðparket og flísar á forstofu, baðherb, þvottahúsi og geymslu.
Nánari lýsing :

Komið er inn í forstofu með góðum eikarskáp. Frá forstofu er gengið inn í rúmgott svefnherbergi með fataskáp.  Frá forstofu er einnig gengið inn í sérgeymslu og frá gangi frá forstofu inn í þvottahús með góðri innréttingu með vaski.  Frá gangi er baðherbergi með glugga. Flísalagt í hólf og gólf með baðkari og flísalagðri sturtu.  Rúmgóð eikarinnrétting og stór spegill fyrir ofan vask. Upphengt salerni og handklæðaofn.  Frá holi við enda gangs er gengið inn í rúmgott svefnherbergi með fataskáp og inn í hjónaherbergi með fataskáp eftir heilum vegg.  Hol er opið við eldhús og stofu. Eldhús er bjart og rúmgott með eikarinnréttingu í U. Gluggi er við vask. Stálofn í vinnuhæð, keramikhelluborð með stálháfi fyrir ofan. Tengi fyrir uppþvottavél. Rúmgóð borðstofa við glugga opin við stofu þar sem útgengt er út á svalir í suður.
Sameign: Í sameigninni er hjóla- og vagnageymsla.
Hér er um að ræða fjölskylduvæna eign í góðu íbúðarhverfi í Kópavogi.  Göngufæri er i leik-og grunnskóla og flesta þjónustu eins og Krónuna og  í apótek.  Íþróttaaðstaða HK í Kórnum er í göngufæri og stutt er í fallegar gönguleiðir í nærumhverfinu. Mjög góðar samgönguleiðir Strætós eru stutt við fjölbýlið.
Allar frekari upplýsingar veitir Dórothea E. Jóhannsdóttir fasteignasali [email protected] og í s.898-3326.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan TORG bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.100,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

img
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Dórothea E. Jóhannsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. okt. 2016
80.950.000 kr.
40.500.000 kr.
10306 m²
3.930 kr.
22. maí. 2008
25.710.000 kr.
29.800.000 kr.
129.3 m²
230.472 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Dórothea E. Jóhannsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ