OPIÐ HÚS AÐ GULLSMÁRA 2, 201 KÓPAVOGI, MIÐVIKUDAGINN 25. MARS FRÁ KL. FRÁ KL. 17:15 - 17:45. ALLIR VELKOMNIR!
Lýsing
Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) í þessu vel viðhaldna fjölbýlishúsi við Gullsmára 2 í Kópavoginum. Eignin skiptist í anddyri, gang, stofu / borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Mjög fallegt útsýni er úr íbúðinni - baðherbergið endurnýjað árið 2023 - snyrtileg og vel umgengin sameign. Birt stærð skv. HMS: íbúðin sjálf er 73,3 fm og geymslan 6,4 fm eða samtals: 79,7 fm.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í anddyri með fataskáp. Frá forstofu tekur við gangur / hol. Flísalagt baðherbergi með Walk-in sturtu, hvít innrétting með speglaskáp og lýsingu, upphengt salerni og handklæðaofni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Rúmgott svefnherbergi I með fataskáp. Eldhús með fallegri hvítri háglans innréttingu, mósaík flísar á milli efri og neðri skápa, borðkrókur og gluggi. Björt og rúmgóð stofa með glæsilegu útsýni, frá stofu er unnt að ganga út á svalir. Svefnherbergi II er með fataskáp. Við inngang inn í húsið er geymslugangur þar sem er 6,4 fm sérgeymsla. Í sameign hússins er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt sorpgeymslu. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum.
ÞETTA ER FALLEG EIGN Á FRÁBÆRUM STAÐ Í BARNVÆNUM HVERFI ÞAÐAN SEM STUTT ER Í ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU, SKÓLA, LEIKSKÓLA O.FL.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða [email protected]
Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram
Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat